120 ára fjölskyldusaga

Menning og listir Mannlíf

""

Borgarskjalasafni barst fyrir stuttu afar merkilegt og fróðlegt einkaskjalasafn hjónanna Helga Þorlákssonar fyrrum skólastjóra Vogaskóla og eiginkonu hans Gunnþóru Sigurbjörgu Kristmundsdóttir skólaritara.

Gefendur voru börn þeirra sem eru sex talsins, þau Þóra Elín, Þorgeir Sigurbjörn, Þorvaldur Karl, Þorlákur Helgi, Þorsteinn og Þorkell.

Bræðurnir Þorgeir Sigurbjörn, Þorvaldur Karl, Þorlákur Helgi og Þorsteinn mættu með skjölin til safnsins flokkuð og innihalds skráð. Safnið er yfirgripsmikið og nær yfir nær 120 ára fjölskyldusögu.

Í safninu kennir ýmissa grasa, má þar nefna talsvert efni um Vogaskóla og um Gangfræðaskóla Austurbæjar, sendibréf frá afa og ömmu gefenda auk dagbóka, mataruppskrifta, innkaupalista, lýsingu á torfbænum í Múlakoti í Síðu þar sem faðir Helga var kennari í 26 ár, sendibréf, póstkort, símskeyti og margra annarra áhugaverðra skjala úr búi þeirra hjóna.

Borgarskjalasafnið kann þeim systkinum hinar bestu þakkir fyrir gjöfina og verður hún mikilvæg viðbót í sögu Reykvíkinga um ókomna tíð.

Fljótlega verður farið í ítarlega skráningu á safninu og verður skjalaskráin birt á vef safnsins.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur tekur við skjölum einstaklinga, félaga og fyrirtækja í Reykjavík til varðveislu. Ef þú hefur undir höndum skjöl eða veist um skjöl sem ættu erindi á safnið, getur þú haft samband við starfmenn safnsins, sem munu meta skjölin, þ.e. hvort ástæða sé til að varðveita þau á Borgarskjalasafni.