Héðinsreitur (Vesturvin) - Yfirborðsfrágangur 2026

Verkið felst í yfirborðsfrágangi framan við ný hús á Héðinsreitnum við gatnamót Ánanausta og Vesturgötu.
Framkvæmdatími: Maí 2026 - Desember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í yfirborðsfrágangi á Héðinsreit eða Vesturvin eins og uppbyggingarreiturinn er einnig kallaður.

Framkvæmdasvæðið er við gatnamót Vesturgötu og Ánanausta og upp Vesturgötu. Verkið felst að mestu í hellulögn á nýjum gönguleiðum, upphækkaðrar gönguþverunar yfir Vesturgötu ásamt gerð gróðurbeða og uppsetningu ljósastólpa.

Hvernig gengur?

Nóvember 2026

Hellulögn austan megin í Vesturgötu er lokið og búið að setja niður ljósastólpa.

Vinna verktaka vestan megin í Vesturgötu fór á bið og er líklegt að sá áfangi færist yfir á næsta ár.

Næst á dagskrá hjá verktaka er að undirbúa fyrir gerð upphækkaðrar gönguþverunar við Ánanaust. Næstu skref verða svo metin í samráði við veðurguðina.

Október 2026

Plöntun í gróðurbeð við Ánanaust og Vesturgötu lauk í október.

Runnum og fjölæringum var plantað í beðin. Af runnum má nefna alparifs og birkikvist. Fjölæringar voru m.a. höfuðklukka, ilmgresi og garðahálmgresi.

Það stendur til að setja niður skrautreyni í Vesturgötu en það verður gert á næsta ári þegar framkvæmdir þar eru komnar lengra.

September 2026

Verktaki hóf vinnu í seinni hluta júlí og hefur lokið hellulögn frá Ánanaustum og uppfyrir innkeyrslu í bílakjallara Héðinsreitar í Vesturgötu. Búið er að leggja snjóbræðslu við innkeyrslu í bílarampa á vegum Héðinsreitar.

Búið er að setja niður ljósastaura austan megin í Vesturgötu.

Áætlað er að hefja vinnu við gangstétt vestan megin í Vesturgötu í október.

Einnig er plöntun í gróðurbeð við Ánanaust og Vesturgötu í undirbúningi og er áætlað að þeirri vinnu geti verið lokið í október.

Hver koma að verkinu?

Verktaki

Krafla ehf.

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Verkefnastjórnun

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu
Síðast uppfært 12.11.2026