Framkvæmdir í Reykjavík

Framkvæmdir, malbikun, fræsing og afnotaleyfi

Hér finnur þú upplýsingar um framkvæmdir, malbikun og afnotaleyfi í Reykjavík. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í borginni hverju sinni.

Veldu það sem þú vilt skoða

Listi yfir framkvæmdir Reykjavíkurborgar

Hér að neðan er hægt að skoða lista yfir framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. Hægt er að skoða eftir tegund framkvæmda, stöðu og ári.

Leita að framkvæmd

Hér er hægt að leita að framkvæmdum í Reykjavík eftir tegund, stöðu eða framkvæmdaári.
  • Skólamál
    Vor 2023-Haust 2025
    Húsnæði leikskólans Grandaborgar gengst undir heildarendurnýjun. Verkefnið er hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Júní 2024 - Mars 2025
    Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Borg/Arnarborga við Maríubakka 1, 109 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á vesturhluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 2070 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Endurbætur á A - álmu í Réttarholtsskóla.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Vor 2024 til haust 2025
    Framkvæmdin felur í sér endurgerð og stækkun á leikskólanum Laugasól.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Áætluð verklok 15.ágúst 2025
    Endurgerð A - álmu
    Síðast uppfært
  • Götur
    Apríl 2025 - Október 2026
    Verkefnið felst í djúpgámastöð við Vesturbæjarlaug. Verkefnið er í skipulagsferli í kynningu.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2025-2029
    í undirbúningi eru meiriháttar endurgerð á húsnæði Laugalækjarskóla
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    Haust 2024
    Niðurrif á gömlu húsnæði.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    Haust 2024
    Framkvæmdin felur í sér niðurrif á gömlum sumarbústað við Leiðhamra Dorfa.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Um er að ræða stækkun leikskólalóðar ásamt tilfærslu göngustígs sem er hluti af endurgerð Kvistaborgar.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Framkvæmdatími: September 2024 - Október 2024
    Verkið felst í enduruppbyggingu hraðahindrunar framan við Álfheima 15.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2023-2024
    Langholtsskóli
    Holtavegur 23, 104 Reykjavík.

    Verkefnið snýr að fimm kennslustofum í kjallara c-álmu skólans.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    Júlí - Október 2024
    Um er að ræða endurbætur og bætt aðgengi á þremur stöðum innan leiksvæðisins í Gufunesi.
    Við grillskýlið á að helluleggja stíg og plan fyrir framan skýlið og setja upp sorpeiningar. Sandleiksvæðið verður stækkað og gert aðgengilegra öllum. Við burstabæinn á að útbúa sandleiksvæði fyrir yngstu börnin. Helstu verkþættir eru uppgröftur, fylling, hellulagnir, pallasmíði, gerð graskanta, gúmmímottur í gras og drenering á vatni.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Október 2024 - Nóvember 2024
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi framan við nýtt hús á Héðinsreitnum við Ánanaust 1 og 3 og nýju P-stæði í Seljaveg.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Upplýsingarsíða vegna yfirstandandi framkvæmda við leikskólann Brákarborg, Kleppsvegi 150-152.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Framkvæmdin hefst í ágúst og er áætluð að ljúki um miðjan desember.
    Reykjavíkurborg í samstarfi við Veitur eru að styrkja dreifikerfið vegna uppbyggingar í Vogabyggð. Gata og lagnir verða endurgerð í Tranavogi en leggja þarf fráveitu-, vatnsveitu-, hitaveitu- og raflagnir.
    Síðast uppfært
  • Íþrótta- og menningarmál
    Framkvæmdin felur m.a. í sér að bæta aðstöðu og þjónustu við fólk með fjölbreytta færni. Gerður verður í þjónustuhúsinu nýr sérklefi með búnaði fyrir fólk með fötlun og plássi fyrir tvo einstaklinga.
    Einnig verður gert við þak og lýsing bætt, bæði á þaki og á laugarsvæði.
    Hurðarflekum verður skipt út fyrir rennihurðir.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    janúar 2025 - október 2025
    " Enn betri grenndarstöð"
    Hér fara fram endurbætur á grenndarstöð við Þjóðhildarstíg. Verkið felur í sér endurbætur á grenndarstöð við Þjóðhildarstíg. Helstu verkliðir eru upptaka á núverandi yfirborði og yfirborðsefnum, jarðvinna, hellu- og kansteinslögn, grasþakning og smíði timburskjólveggja.

    Síðast uppfært
  • Götur
    Júní 2024 - Mars 2025
    Um er að ræða 4. framkvæmdaáfanga á gatnaverkefnum í nágrenni Hlemms sem unninn er í samstarfi við Veitur. Nú hefur Hlemmur verið lagður niður sem umferðarmiðstöð og myndar þessi áfangi upphafið á Hlemmtorgi sem mun teygjast áfram til austurs í framhaldi. Má lesa nánar um framtíðarskipulag hér: https://reykjavik.is/hlemmur
    Síðast uppfært
  • Götur
    Júní 2024 - september 2024
    Um er að ræða tvo verkþætti:
    1. Göngubrýr yfir Miklubraut-Endurnýjun slitlags Verðfsp 15880
    2. Endurgerð stíga við göngubrú yfir Miklubraut, við Kringluna Verðfsp 15899
    Síðast uppfært
  • Hverfið mitt
    2024
    Yfirlit yfir þau verkefni sem verða framkvæmd 2024 og voru kosin áfram í lýðræðisverkefninu, Hverfinu mínu 2023-2024
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Mars 2025 - Júlí 2025
    Verkið felst í endurnýjun á yfirborði og veitum í Vatnsstíg milli Laugavegar og Hverfisgötu.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Júlí 2024 - Október 2024
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi framan við Vesturberg 195 og 199 og við núverandi strætóbiðstöð. Fjarlægja á leigubílavasa og leggja nýjan malbikaðan stíg í stað núverandi óskastígs yfir grasflöt við Vesturhóla.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Júlí 2024 - Nóvember 2024
    Verkið felst í byggingu á nýjum skúr Geislavarna ríkisins.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Júní - Ágúst 2024
    Verkefnið felst í umferðaröryggisúrbótum á hægribeygju framhjáhlaupum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Um er að ræða gerð upphækkaðra gönguþveranna og breikkun gönguleiða í þríhyrningseyjum ásamt lagningu viðvörunarhellna við gönguþveranir. Vegagerðin er framkvæmdaraðili verksins með þáttöku USK Reykjavíkurborgar
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Júní 2024 - November 2024
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi og eftirstöðvum í Hverfi 1 í Úlfarsárdal.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Október 2024 - Desember 2024
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi á nýju torgi, Urðartorgi, við Leirtjörn í Úlfarsárdal meðfram Rökkvatjörn.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Júní 2024 - Ágúst 2024
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi við Skógarveg og má skipta framkvæmd í tvö svæði:

    1. Malbikuð aðkomugata að lóð Skógarvegar 10 ásamt malbikuðum stíg.
    2. Steypt stétt og innkeyrsla við götu ásamt þökulögn.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Maí-Júní 2024
    Bráðabirgðastaðsetning á biðstöðvum strætó við Snorrabraut 29 (til norðurs) og Snorrabraut 32 (til suðurs).

    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    júní 2024 - desember 2024
    Enn betri grenndarstöð.
    Hér fara fram endurbætur á þremur grenndarstöðvum í Reykjavík, við Austurberg, Einarsnes og Langarima.
    Helstu verkliðir eru upptaka á núverandi yfirborði og yfirborðsefnum, jarðvinna, hellu- og kantsteinslögn, grasþakning og smíði timburskjólveggja.

    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2022-2024
    Þak á aðalbyggingu Vörðuskóla (áður Gagnfræðaskóli Austurbæjar) verður endurnýjað samhliða endurnýjun á öllum gluggum. Gert verður við önnur þök og unnið samkvæmt upprunalegum teikningum Guðjóns Samúelssonar.

    framkvæmdum við endurnýjun þaks og glugga lauk á haustmánuðum 2024
    í undirbúningi er að bjóða út múrkerfi með einangrun utan á alla útveggi bygginga Vörðuskóla - reiknað er með að framkvæmdir við múrkerfi hefjist vorið 2025
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Apríl 2024 - Nóvember 2024
    Framkvæmdin felur í sér fullnaðarfrágang á göngu- og hjólastíg, stíglýsingu ásamt hitaveitulögnum og raflögnum frá Bæjarhálsi að Hesthálsi.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2024
    Verið er að setja upp Ævintýraborg við Vörðuskóla sem er tímabundið leikskólaúrræði á vegum Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2023-2027
    Unnið er að hönnun og við framkvæmd á endurgerð Hólabrekkuskóla. Unnið er nú í fyrsta áfanga skólans sem alls eru fjórir.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2024
    Unnið er að viðgerð á utanhússklæðningu Ingunnarskóla. Verkið hefur áður verið boðið út en vegna vanefnda var ákveðið að segja upp samningi við þáverandi verktaka og bjóða verkið út að nýju til að klára viðgerð á utanhússklæðningunni svo sómi sé að.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2024-2025
    Viðgerð á göflum leikskólans er í hönnun en reiknað er með framkvæmd sumarið 2025.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2025
    Húsnæði leikskólans Árborgar gengst undir heildarendurnýjun. Verkefnið er hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    vetur 2023 – sumar 2025
    Húsnæði leikskólans Hálsaborgar gengst undir heildarendurnýjun. Verkefnið er hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    2023-2025
    Húsnæði leikskólans Sólhlíðar gengst undir heildarendurnýjun. Verkefnið er hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Áætlaður framkvæmdatími: 07.03.2024 -20.05.2024
    Framkvæmdir fela í sér að núverandi bílastæði við Skúlagötu á móts við gatnamót Skúlagötu/Klapparstígs verði endurgerð sem endastöð fyrir Strætó. Endastöðin er með miðeyjar fyrir stoppistöðvar fyrir fimm Strætóleiðir og starfsmannaaðstöðu fyrir vagnstjóra.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: 4. janúar 2024 - 1. desember 2024
    Framkvæmdin felst í stígagerð frá Grænugróf að Breiðholtsbraut ásamt fullnaðarfrágangi göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaá við Grænugrófina. Auk þess skal breyta núverandi reiðstíg á svæðinu og gera nýjan áningarstað við Dimmu.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Áætluð verklok 15. júlí 2024
    B álma Réttarholtsskóla verður endurgerð en í framhaldinu verður A álma skólans endurgerð.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Júlí 2024 - Maí 2025
    Verkið felst í gerð, göngu og hjólaleiðar norðanvert í Skógarhlíðina ásamt endurskipulagningu bílastæða við Skógarhlíð 20 með steyptum stoðveggjum, tengingu stíga á milli Eskihlíðar 14 og 16 og jarðvegsskipt verður undir nýjum stígum og götu.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Jan 2024 - Sept 2024
    Verkið felur í stórum dráttum í sér gerð göngu- og hjólastígs meðfram Kringlumýrarbraut við Suðurhlíð, frá rampa norðan Bústaðavegar að rampa frá Kringlumýrarbraut að Suðurhlíð.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Nóvember 2023 til júní 2024
    Verkefnið felst í endurbætum á biðstöðvum Strætó í Reykjavík
    Síðast uppfært
  • Götur
    Nóvember - Desember 2023
    Aðkoma norðan Kjarvalsstaða. Um er að ræða endurgerð á tröppum við aðkomutorg við Flókagötu, koma fyrir hjólastólarampa og merkingum fyrir blinda og sjónskerta, uppsetningu á lýsingu og handriði við tröppur. Um er að ræða jarðvinnu, upprif, uppsetningu búnaðar og lýsingu ásamt frágangi yfirborðs og snjóbræðslu.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Október 2023 - maí 2024
    Um er að ræða endurnýjun á burðarlagi og lögn tvöfaldrar klæðingar (K2) á Úlfarsfellsveg.
    Síðast uppfært
  • Götur
    nóvember 2023 til október 2024
    Umferðaröryggisaðgerðir víðsvegar um borgina.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Reiknað með að verkið taki um 2 mánuði háð tíðarfari.
    Endurbætur verða gerðar á Hólmsárbrú sem laskaðist síðasta vetur. Miðstólpi gaf sig og þyngdartakmarkanir settar á brú. Endurbætur fela í sér að sterkari burðarbitar verða settir undir brúargólf.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    September 2023 til maí 2024
    Gerð gatnamóta Borgartúns við Hallgerðargötu ásamt gerð almenningsgarðs og gróðureyja við Borgartún.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Mars 2023 - Desember 2026
    Unnið er að fergingu lands í Bryggjuhverfi við Sævarhöfða, nánar tiltekið vestan Tangabryggju og Gjúkabryggju og gerð landfyllingar við höfnina.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Júní 2022 - október 2023
    Verkefnið er hluti af endurnýjun lóða í kringum Hlemm. Þessi áfangi snýr að götuhluta Rauðarárstígs milli Bríetartúns og Hverfisgötu. Veitulagnir, snjóbræðslulagnir, yfirborðsfrágangur og götulýsing verður endurnýjuð.
    Síðast uppfært
  • Götur
    September 2022 - október 2023
    Verkefnið er hluti af endurnýjun lóða í kringum Hlemm. Þessi áfangi snýr að götuhluta Laugavegs milli Snorrabrautar og Hlemms sem verður breytt í göngugötu í samræmi við landslagshönnun Mandaworks og DLD sem vann hönnunarsamkeppni sem var haldin. Einnig fer fram endurnýjun veitulagna, snjóbræðslulagna og götulýsingar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Vetur 2023 – Vor 2025
    Húsnæði leikskólans Garðaborgar gengst undir heildarendurnýjun. Verkefnið er hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Áætluð verklok vor 2024
    Endurbæturnar fela í sér m.a. að þakklæðning verður verður endurnýjuð og einangruð. Þá verða loftaklæðning, raflagnir og lýsing endurnýjuð.
    Nýjum gangaveggjum verður komið fyrir ásamt, gólfhita, málun og nýjum gólfdúk.
    Síðast uppfært
  • Íþrótta- og menningarmál
    Árið 2025.
    Framkvæmdir vegna Vetrargarðs í Breiðholti eru hafnar. Skíðalyftan sem er til staðar, hefur verið tekin niður tímabundið á meðan á framkvæmdum stendur. Svæðið verður mótað upp á nýtt. Búist er við að hægt verði að setja aftur upp skíðalyftu sumarið 2025 samhliða annarri uppbyggingu á svæðinu tengt garðinum.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Desember 2023
    Nýr vegur frá tengivegi Björgunar við Víðinesveg er undirbúinn. Áætlun verksins gerir ráð fyrir nýjum vegi sunnan við jarðgerðarstöðina. Vegurinn kemur í svæði sem búið er að afmarka fyrir hugsanlega legu Sundabrautar. Gert er ráð fyrir vegi sem er með 7 metra breiðu slitlagi og 1 metra öxlum beggja megin.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Október 2022 - Desember 2023
    Um er að ræða heildarframkvæmdir við gerð gatna, jarðvegsskipti fyrir göngu- og hjólastígum og lagna á Esjumelum. Verkið felst í megindráttum í gerð nýrra gatna og fullnaðarfrágangi stofnlagna fráveitu, skólplagna og vatns í götustæði ásamt frágangi stofnlagna hitaveitu, rafmagns og ljósleiðara í gangstéttarstæði.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Byrjun ágúst til loka september
    Átak innan lóðar leikskólans Rauðuborgar þar sem skipt er um yfirborðsefni á leiksvæðum, lýsing bætt, leiktækjum og setbekkjum bætt við.

    Bílastæði fyrir hreyfihamlaða einnig bæt við síðar í haust í aðskildu verkefni.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Júní til október
    Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Hálsaskógs-Borgar við Hálsaseli 27, 109 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er vesturhluti lóðar og er um það bil 1.100 m².
    Síðast uppfært
  • Götur
    Verk hefst í júlí 2023 og verklok í nóvember 2023
    Gangstétta framkvæmdir.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    2024
    Verið er að fara að endurgera grenndar- og endurvinnslustöðina við Klambratún og færa hana nær Flókagötu. Setja á niður fimm nýja niðurgrafna djúpgámum fyrir pappír, plast, gler og málm, einnig er gert ráð fyrir gámum ofanjarðar fyrir textil og dósir.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Haust 2023 - Sumar 2024
    Framkvæmdin felst í uppbyggingu nýrrar 20 m2 viðbyggingar sem notuð verður sem stækkun á fataklefa og anddyri, innanhúss breytingum, lagningu nýrrar loftræsingar og snjóbræðslu auk þak- og gluggaskipta. Einnig verður bætt við björgunaropi á allar deildir leikskólans.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Júní til Október
    Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Suðurborgar við Suðurhóla 19, 111 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á vesturhluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 1800 m² að stærð. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Ágúst til desemberloka.
    Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Klambra við Háteigsveg 33, 105 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er syðri hluti lóðarinnar en teygir sig til norð-austurs og er um það bil 1200 m².
    Síðast uppfært
  • Götur
    September til loka október 2023
    Verið er að bæta aðkomu skólabíla tímabundið. Bílaplan skólans er notað undir skólabíla. Nú stendur yfir framkvæmdir þar sem innkeyrsla skólabíla er breytt tímabundið meðan á endurbótum stendur á skólahúsnæði. Þegar breytingunni er lokið þá geta skólabílar ekið inná planið og keyrt út af því án þess að þurfa að bakka. Þetta er nauðsynlegt til að auka öryggi skólabarna og annarra sem erindi eiga um svæðið.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Desember 2023
    Verkið gengur út á að bæta öryggi skólabarna á leið í tímabundna skóla aðstöðu við Ármúla 30. Settar verða upp miðeyjur, hraðaalda og sebrabraut í götu. Rútustæði lagað ásamt lagfæringum á gangstéttum.
    Síðast uppfært
  • Götur
    des 2023
    Gera skal breytingar á gatnamótum Sæbrautar, Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs þar sem gönguþveranir yfir framhjáhlaup eru upphækkaðar og gerðar að gangbrautum ásamt því að eyjar eru stækkaðar. Einnig er önnur vinstri beygjuakreinin á Kleppsmýrarvegi inn á Sæbraut lögð af og miðeyja á Kleppsmýrarvegi breikkuð og gróður settur í hana. Að auki skal færa stjórnkassa umferðarljósanna og endurnýja lagnir og brunna að hluta í tengslum við það.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Áætlaður framkvæmdatími er byrjun september 2023 og verklok desember 2023
    Verkið felur í sér jarðvinnu vegna nýrra djúpgáma sem staðsettir eru í Hrannarstíg við Öldugötu og allan frágang djúpgáma. Einnig er innifalið í verkinu vinna við færslu niðurfalla og tengingu þeirra við stofnlagnir, breytingar nýrra götukanta bæði í Hrannarstíg og Öldugötu og frágang yfirborðs. Við framkvæmdina fækkar bílastæðum nokkuð eða um 5 stæði við Hrannarstíg og 8 stæði í Öldugötu.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Júní til síðari hluti Október
    Verkið snýr að endurgerð á lóð Borgaskóla að Vættaborgum 9, 112 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á norð-vesturhluta skólalóðar en það svæði er alls u.þ.b 4500 m² að stærð.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Júní til síðari hluta október
    Verkið snýr að endurgerð lóðar Tjarnarborgar við Tjarnargötu 33, 101 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á allri lóð leikskólans en það svæði er u.þ.b 640 m² að stærð.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: Ágúst 2023 - Desember 2023
    Verkið felst í yfirborðsfrágangi á gangstétt framan við nýjar byggingar við Mýrargötu 33 og 39.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími: 25. júlí 2023 - 31. október 2023
    Í megindráttum felst verkið í gerð nýrra stíga meðfram hitaveitustokki frá Réttarholtsvegi að Sogavegi
    og breikkun núverandi stígs meðfram Sogavegi frá Bústaðavegi að hitaveitustokki. Einnig eru
    gönguþveranir breikkaður og endurnýjaðar yfir Réttarholtsvegi og Tunguveg og ný gönguþverun gerð
    yfir Álmgerði.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    2021 - 2024
    Um er að ræða útivistar- og upplifunarstíg sem liggur umhverfis Perluna í Öskjuhlíð. Hugmyndin byggir á vinningstillögu Landslags í hugmyndasamkeppni um skipulag Öskjuhlíðar sem haldin var árið 2013.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Júlí 2023 - desember 2023
    Framkvæmdin felur í sér gerð hringtorgs á gatnamótum Víkurvegar og Borgavegar í Grafarvogi í stað núverandi ljósastýrðra gatnamóta og stækkun núverandi hringtorgs á Víkurvegi við innkeyrslu á lóð Egilshallar.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Áætluð verklok haustið 2023
    Til að koma til móts við fjölgun nemenda verður gerð breyting á innra skipulagi Réttarholtsskóla. Breytingin felst í því að færa til starfsemi milli kennslurýma þannig að nám og kennsla verði betri innan skólans.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Framkvæmdatími: júní 2023 - 18. nóvember 2023
    Framkvæmdin felur í sér endurgerð á núverandi gatnamótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar ásamt aðlögun á aðliggjandi götum og gangstéttum.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    Framkvæmt verður sumarið 2023.
    Skáldkonugarðurinn mun innihalda standa með ljóðum skáldkvenna. Í garðinum verða rósarunnar og fjölbreyttur undirgróður. Verkefnið felst meðal annars í yfirborðsfrágangi og gróðurbeðum.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Áætluð verklok 5. sept 2023
    Breytingar innanhúss. Starfsfólk mun fá vinnu og fundarrými ásamt setustofu og hvíldarrými. Fatahengi og salernisaðstaða verður endurnýjuð ásamt leik og hvíldarherbergjum. Byrjað verður á endurgerð leikherbergis og hvíldarherbergja fyrir opnun leikskólans í haust og áframhaldandi vinna mun standa yfir fram að áramótum.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Maí 2024 - október 2024
    Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi Jöfursbáss í Gufunesi. Fjölda nýrra bílastæða verður bætt við götuna ásamt gróðri.
    Vegna byggingarframkvæmda við Jöfursbás 1-3 verður ekki hægt að klára yfirborðsfrágang við þann hluta götunnar fyrr en síðar.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Maí 2023 - október 2023
    Verkið felst endurnýjun og flutningi lagna út fyrir lóðamörk Nauthólsvegar 79 og 81 ásamt gerð stíga meðfram Flugvallarvegi og Nauthólsvegi í legu nýrra lagna.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    September 2021 - 2026
    Endurbætur á húsnæði leikskólans Kvistaborgar í Fossvogi. Farið verður í gagngerar endurbætur á elsta húsnæði skólans, þak og gluggar m.a endurnýjað og hljóðvist, ljósvist og loftræsting bætt. Færanlegum kennslustofum verður komið fyrir á lóð.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Ágúst 2021 - desember 2025
    Gatnagerð nýrra gatna sem og endurgerð eldri gatna í Vogabyggð. Unnið er við jarðvegsskipti í götum ásamt lagningu stofnlagna fráveitu, heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og fjarskiptalögnum. Gengið verður frá yfirborði gatna, kantsteinum og gangstéttum.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    2023
    Gerð leik- og dvalarsvæðis við Rauðavatn með aðgengilegri stígatengingu frá bílastæðinu að leik- og dvalarsvæði við vatnið, út frá því verða gerðar nýjar og endurbættar stígatengingar.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    2022 - 2023
    Verkefnið tilheyrir uppbyggingu á útivistarsvæði Austurheiða. Í þessum fyrsta áfanga verður byggður leik- og áningarstaður í Lyngdal, bílastæði stækkað og stígar bættir, og leik- og áningarsvæðis fyrir fólk og dýr gert í Paradísarskál.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Desember 2023
    Verkið felst í að ganga frá yfirborði í Fálkahlíð og við Hlíðarfót milli Fálkahlíðar og Arnarhlíðar ásamt því að ganga frá lögnum og strengjum veitufyrirtækja.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Framkvæmdatími 7. júlí 2023 til 1. nóvember 2023
    Yfirborðsfrágangur og eftirstöðvar gangstétta og gönguleiða í Reynisvatnsás.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Framkvæmdir fela í sér endurnýjun götulagna, gatnagerðar og yfirborðsfrágangs í Mjölnisholti.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    September 2022 - júní 2023
    Gerð göngu- og hjólastígs frá Vatnsveitubrú að Breiðholtsbraut ásamt stíglýsingu.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Framkvæmdatími: Júní 2023 - Október 2024
    Verkið felst í megindráttum í heildarfrágangi ofanvatnsrása gerð gangstétta og útivistarstígs sem og malbikun lóðargatna.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Verkið hefst í júní 2023 og verklok eru áætluð í lok nóvember 2023
    Verkið felst í því að jafna undir gangstéttar, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa gangstéttar, leggja snjóbræðslu, leggja hellur og þökuleggja í Úlfarsárdal.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Áætlaður framkvæmdatími: Júní 2023 - Október 2023
    Gerð jarðvegsmana meðfram Breiðholtsbraut ásamt nýjum stíg með lýsingu aftan við hús við Elliðabraut.
    Síðast uppfært
  • Götur
    Upphafsfundur er í júní 2023 og verklok áætluð í maí 2026
    Framkvæmdin felst í gerð gatna og veitukerfa fyrir nýtt íbúðar- og þjónustuhverfi á núverandi iðnaðarsvæði á Ártúnshöfða. Um er að ræða upprif og förgun á núverandi yfirborði, losun klappar og lagnaskurða, jarðvegsskipti, gerð stoðveggja, lagningu fráveitu-, vatns- og hitaveitulagna, ásamt lagningu raf- og ljósleiðaralagna. Einnig gerð fyllinga og burðarlaga í götur, stíga og stéttar, ásamt uppsetningu götulýsingar og malbikunar.
    Síðast uppfært
  • Göngu- og hjólastígar
    Áætluð verklok á vormánuðum 2024
    Framkvæmdin felur í sér framlengingu á Álfabakka með göngu- og hjólastíg til suðurs um það bil 350 metra. Meðfram núverandi Álfabakka frá Árskógum verður jarðvegsskipt og undirbyggt fyrir hjóla- og göngustíg. Stígurinn liggur svo áfram til suðurs og tengist núverandi stígakerfi í Kópavogi.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Framkvæmdir hófust í september 2022 og er áætlað að lokafrágangi verði lokið sumarið 2024
    Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir í Hagaskóla sem miða að því að byggja upp húsnæði sem hæfir nútíma kennsluháttum með heildstæðri hönnun og góðri virkni fyrir nemendur og kennara.
    Síðast uppfært
  • Skólamál
    Framkvæmdir hófust í janúar 2023
    Farið verður í umfangsmikið viðhald og endurnýjun í Laugarnesskóla á næstu árum. Saga skólans er löng og tímabært að uppfæra húsakost skólans, ekki síst með tilliti til kennsluhátta framtíðarinnar.
    Síðast uppfært
  • Opin svæði og garðar
    Apríl - ágúst 2023
    Verkið felst í að styrkja grasflötina á viðburðaflötinni í Hljómskálagarðinum svo hún þoli betur álag vegna stórra viðburða. Hluti grasflatarinnar verður hækkaður upp og afmarkaður með grágrýtishleðslu með innfelldri lýsingu og hellulagðri gönguleið. Vinnusvæði verður í suðurhluta Hljómskálagarðs.
    Síðast uppfært