English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma
Vitastígur 2
101 Reykjavík
Dagþjálfun á Esjutúni er fyrir fólk sem hefur greinst með heilabilunarsjúkdóma. Þar er boðið upp á fjölbreyttar samverustundir, útiveru, vinnustofu, léttar leikfimiæfingar og ýmislegt fleira sem viðheldur athöfnum daglegs lífs. Lögð er áhersla á að hver einstaklingur njóti sín og finni til öryggis og vellíðunar. Hársnyrtistofa og fótaaðgerðastofa eru til staðar fyrir þau sem þess óska.
Notendur eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis. Hægt er að nýta sér þjónustuna frá einum og upp í fimm virka daga í viku.
Forstöðumaður er Ásta Sigríður Sigurðardóttir.
Til að geta fengið pláss á Esjutúni þarftu að:
Heilbrigðisstarfsfólk sækir um sérhæfða dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun þegar greining liggur fyrir. Umsóknin fer annars vegar til Minnismóttöku Landakots sem heldur utan um biðlista og hins vegar á Vitatorg eða á þá sérhæfðu dagþjálfun sem óskað er eftir plássi á.
Þegar pláss losnar er hringt í aðstandanda og honum ásamt notanda boðið á kynningu á starfinu þar sem farið er yfir fyrirkomulag og þarfir notandans.