English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Dagdvöl fyrir eldra fólk
Vesturgata 7
101 Reykjavík
Í Þorraseli er boðið upp á fjölbreytta tómstundaiðju og virkni fyrir eldra fólk sem býr heima en þarf félagslegan stuðning. Þar er einnig hægt að fá mat og hvíldaraðstöðu, aðstoð við böðun og heilsufarseftirlit. Sjúkraþjálfun er í boði fyrir fólk sem er með beiðni frá lækni um slíka þjónustu.
Notendur eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis. Hægt er að nýta sér þjónustuna frá tveimur og upp í fimm virka daga í viku.
Forstöðumaður er Ásta Sigríður Sigurðardóttir.
Til að geta fengið pláss í Þorraseli þarft þú að:
Þú sækir um á Mínum síðum. Einnig er velkomið að panta tíma í heimsókn til að kynna þér starfsemina og fylla út umsókn á staðnum.
Eftir að þú sækir um er þér boðið í viðtal hjá forstöðumanni Þorrasels þar sem farið er yfir þarfir þínar. Í kjölfarið færð þú pláss eða ferð á biðlista, allt eftir aðstæðum hverju sinni.
Fólk sem fær pláss í dagdvölinni er boðið í heimsókn þar sem farið er yfir fyrirkomulag starfsins, skipulag á akstri o.fl. Mikið er lagt upp úr því að fólk sem er að byrja að sækja Þorrasel fái góðar móttökur og því fær hver og einn þátttakandi sérstakan tengilið úr hópi starfsfólks.
Fólk sem fer á biðlista fær reglulega símtöl þar sem upplýst er um stöðu mála.
Vistunargjöld eru 1.313 kr. á dag sem notandi greiðir sjálfur. Auk þess eru greiddar 2.000 kr. í skemmtisjóð á mánuði.
Tilkynna þarf fjarvistir fyrir kl. 8:30 í síma 535 2740.
Mikilvægt er að tilkynnt sé um lengri fjarvistir, s.s. vegna hvíldarinnlagna eða endurhæfingar með eins miklum fyrirvara ef hægt er. Notendur geta haldið plássi sínu í allt að átta vikur.