English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ
Ár 2002. Föstudaginn 18. október var haldinn 318. fundur íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn á Fríkirkjuvegi 11 og hófst kl. 12:10.
Viðstaddir voru: Anna Kristinsdóttir formaður, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Kjartan Magnússon og Friðjón R. Friðjónsson.
Jafnframt: Gísli Árni Eggertsson aðstoðarframkvæmdastjóri, Skúli Skúlason fjármálastjóri, Steinþór Einarsson markaðsstjóri, Erlingur Þ. Jóhannsson íþróttafulltrúi og Logi Sigurfinnsson framkvæmdastjóri skíðasvæða.
Fundarritari: Helga Björnsdóttir skrifstofustjóri.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf Skipulags- og byggingasviðs dags. 11. okt. sl. þar sem kynnt er deiliskipulag fyrir "Heilsuverndarreit".
Vísað til framkvæmdastjóra.
Kl. 12:15 kom Ómar Einarsson framkvæmdastjóri á fundinn.
Kl. 12:20 kom Reynir Ragnarsson á fundinn.
2. Lögð fram skýrsla Íþróttasambands fatlaðra um sumarbúðir sem styrktar eru af ÍTR.
3. Lagt fram bréf Knattspyrnufélagsins Þróttar dags. 9. okt. sl. varðandi Rey-Cup.
4. Lagt fram bréf verkefnisstjóra Vinnumiðlunar skólafólks dags. 6. okt. sl. ásamt skýrslu vegna ársins 2002.
Samþykkt að fá verkefnisstjóra á næsta fund.
5. Lögð fram fræðsluáætlun ÍTR fyrir veturinn 2002-2003.
6. Lagt fram bréf Þroskahjálpar dags. 7. okt. sl. varðandi lengda viðveru fatlaðra nemenda í grunnskólum Reykjavíkur.
Kl. 12:30 kom Ingvar Sverrisson á fundinn.
7. Lagt fram bréf GR dags. 8. okt. sl. varðandi þátttöku stúlkna í golfi.
Samþykkt að afla frekari upplýsinga um málið.
Kl. 12:45 kom Soffía Pálsdóttir æskulýðsfulltrúi á fundinn.
8. Starfs- og fjárhagsáætlun ÍTR 2003 kynnt fyrir fulltrúum ráðsins.
Kl. 12:50 vék Kolbeinn Óttarsson Proppé af fundi.
Fundi slitið kl. 13:30.
Anna Kristinsdóttir
Ingvar Sverrisson Kjartan Magnússon
Friðjón R. Friðjónsson