English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Preschool
Dyrhamrar 5
112 Reykjavik
Leikskólinn Klettaborg er í Hamrahverfi í Grafarvogi, við hliðina á grunnskóla hverfisins. Þegar leikskólinn tók til starfa 1. júní 1990 voru deildirnar þrjár en í febrúar 2004 bættist fjórða deildin við. Fálkaklettur og Arnarklettur eru fyrir eldri börnin og Hrafnaklettur og Kríuklettur fyrir yngri börnin. Í leikskólanum dvelja um 71 barn samtímis á aldrinum frá eins árs til sex ára.
Leikskólastjóri er Júlíana S. Hilmisdóttir
Viltu vita meira um Klettaborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.
Gildi Klettaborgar eru gleði, virðing og öryggi
Í Klettaborg er áhersla lögð á gott og frjótt málumhverfi og að gleði, virðing og öryggi séu ríkjandi í samskiptum og umhverfi barna. Sýn Klettaborgar er sú að börn séu virk í þekkingarleit sinni og áhugasöm um að takast á við áskoranir daglegs lífs. Út frá þessari sýn er hugmyndafræði starfsins að mestu sótt í smiðju John Deweys sem lagði áherslu á að barnið væri sjálfstæður, hugsandi einstaklingur sem byggir upp eigin reynslu til að þroskast og læra.
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Klettaborgar? Í skólanámskrá Klettaborgar finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Hvað er framundan á Klettaborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.
Leikskólinn Klettaborg tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.