Back to the jobs page

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi

Frístundamiðstöðin Brúin óskar eftir starfsfólki skólaárið 2026-2027 í frístundaheimilin Brosbæ í Engjaskóla, Fjósið við Sæmundarskóla, Hvergiland í Borgaskóla, Kastala í Húsaskóla, Regnbogaland í Foldaskóla, Simbað sæfara í Hamraskóla, Stjörnuland í Ingunnarskóla, Tígrisbæ við Rimaskóla, Töfrasel við Árbæjarskóla og Víðisel í Selásskóla.

Hlutastarf Frístundamiðstöðin Brúin - barnasvið 112
Apply

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar og býður upp á fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur.

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur en þeir eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja og framkvæma faglegt frístundastarf fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í boði eru hlutastörf, 20-50%, klukkan 13-17.

Tímabundin ráðning.

Gott er að umsækjendur taki fram hversu háu hlutfalli óskað er eftir, á hvaða dögum viðkomandi getur unnið og ef óskað er eftir ákveðnu frístundaheimili.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar veitir Ásrún Ýr, deildarstjóri barnastarfs, asrun.yr.runarsdottir@reykjavik.is.

Apply