Back to the jobs page

Matráður -

Matráður í ungbarnaleikskóla

Fullt starf Ungbarnaleikskóli Hallgerðargötu 105
Apply

Matráður óskast í afleysingu í eitt ár í ungbarnaleikskóla við Hallgerðargötu. Leikskólinn er tveggja deilda með 60 börnum.

Staðsetning leikskólans er í nýju hverfi sem verið er að byggja upp á Kirkjusandi í 105 Reykjavík.

Í leikskólanum er góður aðbúnaður fyrir börn og starfsfólk. Eldhúsið er allt fyrsta flokks, með nýjum tækjum og góðri aðstöðu til vinnu. Lögð er áhersla á að skapa hlýlegt umhverfi og efla sjálfstæði barnanna í samvinnu við matráð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matráður ber ábyrgð á matseld, innkaupum, stjórnun, skipulagningu og framkvæmd starfsinsí eldhúsinu í samvinnu við leikskólastjóra. Auk þess sér yfirmaður í eldhúsi um þvotta.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla af matreiðslu í stóreldhúsi
  • Góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og hæfni til verkstjórnunar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Nákæmni í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta 
  • íslenskukunnátta á stigi B2 
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Menningarkort/sundkort
  • Samgöngustyrkur
  • 36/38 stunda vinnuvika

Starfið er laust í ágúst eða eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Frekari upplýsingar um starfið veitir

Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri

netfang: anna.blondal@reykjavik.is - sími: 773-4454

Apply