English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Preschool
Fifurimi 13
112 Reykjavik
Leikskólinn Fífuborg í Grafarvogi tók formlega til starfa í janúar 1993. Í næsta nágrenni skólans er grenndarsvæði hans, Hallsholt. Það er vinsæll áfangastaður í gönguferðum barnanna og mikið nýtt í útikennslu og frjálsum leik. Starfsmenn eru 20 á fjórum deildum skólans þar sem um 70 börn geta dvalið samtímis. Deildirnar kallast Ljósheimar, Álfheimar, Dvergheimar og Hulduheimar.
Leikskólastjóri er Helga Sigurðardóttir
Viltu vita meira um Fífuborg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið.
Gildi Fífuborgar eru virðing, heilbrigði og gleði
Leikurinn er kennslutæki okkar í Fífuborg og á honum grundvallast allt starf skólans. Lagt er út frá því að börn læri best í gegnum leik og því skapaðar aðstæður þar sem barnið fær notið sín í leiknum og hafi greiðan aðgang að fjölbreyttum og opnum efnivið bæði innandyra sem utan. Megináherslur í starfi leikskólans eru vinátta, umhverfismennt, læsi og lýðræði.
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Fífuborgar? Í skólanámskrá Fífuborgar finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.
Hvað er framundan á Fífuborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.
Hvenær eru starfsdagar í Fífuborg? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.
Leikskólinn Fífuborg tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.