Álftabær

Frístundaheimili

Safamýri 28
105 Reykjavík

""

Um Álftabæ

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Álftabær er frístundaheimili fyrir börn úr 1.- 4. bekk í Álftamýrarskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Frístundaheimilið er starfrækt innan veggja skólans og hefur aðgang að matsal og öðrum rýmum skólans. 

Forstöðumaður er Alda Mjöll Sveinsdóttir.

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Álftabæ frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Álftabær er lokaður í vetrarleyfi skólans.

Starfsemi

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Álftabæ má finna á heimasíðu Álftamýrarskóla 

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​