Borgaskóli
Grunnskóli, 1.-7. bekkur
Vættaborgir 9
112 Reykjavík
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skóladagatal Borgaskóla
Hér finnur þú skóladagatal Borgaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili.
Um Borgaskóla
Borgaskóli í Grafarvogi hóf starfsemi sína 1. ágúst 2020. Skólinn er við Vættaborgir og við hlið hans stendur leikskólinn Hulduheimar. Borgaskóli byggir á góðum grunni Kelduskóla og Vættaskóla sem luku starfsemi árið 2020. Skólinn er fyrir nemendur í 1.-7. bekk og tekur Víkurskóli við nemendum í 8.-10. bekk. Áætlaður nemendafjöldi er um 250 nemendur. Við skólann starfa rúmlega 40 starfsmenn.
Í Borgaskóla er unnið eftir aðferðum leiðsagnarnáms þar sem nemendur eru virkir þátttakendur í náminu og er Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna samofinn skólastarfinu. Lögð er áhersla á umhverfismennt og er Borgaskóli Grænfánaskóli. Í skólanum er einnig öflugt tækniver þar sem upplýsingatækni og nýsköpun er gert hátt undir höfði. Borgaskóli er regnbogavottaður vinnustaður.
Frístundaheimilið Hvergiland fyrir nemendur 1.-4. bekkjar hefur aðstöðu í hluta skólahúsnæðisins ásamt félagsmiðstöðinni Vígyn sem er fyrir nemendur 5.-7. bekkjar.
- Skólastjóri er Árný Inga Pálsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri er Ester Helga Líneyjardóttir
- Deildarstjóri stoðþjónustu er María Haraldsdóttir
- Deildarstjóri er Þuríður J. Ágústsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Borgaskóla er: María Haraldsdóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Skólastarfsemi
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Borgaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólaráð
Skólaráð Borgaskóla skipa:
Árný Inga Pálsdóttir
Fulltrúar kennara:
Ingunn Margrét Óskarsdóttir
Unnur Jónsdóttir
Fulltrúi starfsfólks:
Kristín Lára Ragnarsdóttir
Fulltrúi grenndarsamfélags:
Ásgerður Breiðfjörð Ólafsdóttir
Fulltrúar foreldra:
Helena Konráðsdóttir
Kristjana Þuríður Þorláksdóttir
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.
Stjórn foreldrafélags Borgaskóla:
Formaður: Helena Konráðsdóttir
Gjaldkeri: Hrönn Harðardóttir
Ritari: Kristjana Þuríður Þorláksdóttir
Meðstjórnendur:
Borgaskóli er hverfisskóli fyrir íbúa í eftirtöldum götum:
Álfaborgir, Breiðavík, Dísaborgir, Dofraborgir, Dvergaborgir, Gautavík, Goðaborgir, Hamravík, Hulduborgir, Jötnaborgir, Ljósavík, Móavegur, Tröllaborgir, Vættaborgir og Æsuborgir.