Menningarnótt - Upplýsingar

Allt um Menningarnótt

Vissir þú að Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar?

Reykjavíkurborg fékk kaupstaðaréttindi þann 18. ágúst 1786 og venju samkvæmt verður blásið til allsherjar veislu á Menningarnótt þar sem öllum er boðið. Hér fyrir neðan eru að finna algengar spurningar og svör er varða hátíðina.

Kort af hátíðarsvæðinu

 

Algengar spurningar og svör

Hvenær og hvar fer Menningarnótt fram?

Í ár fer Menningarnótt fram 19. ágúst 2023 og stendur dagskráin kl. 12:00–23:00.

Hátíðarsvæðið er miðborgin öll, að Lönguhlíð í austurbænum, að Hagatorgi í vesturbænum og teygir sig út á Granda.

Setning Menningarnætur fer fram kl. 12:00 á Kjarvalsstöðum og fara svo viðburðir fram um alla um alla borg í framhaldi.

Formlegri dagskrá lýkur með flugeldasýningu á Arnarhóli kl. 23:00.

Verða götulokanir á Menningarnótt?

Í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu verður hluti miðborgarinnar lokaður fyrir akandi umferð til að tryggja öryggi gesta Menningarnætur.

Kort af hátíðarsvæðinu sýnir það svæði sem verður lokað fyrir akandi umferð. Engar undantekningar verða gerðar.

Lokanir taka gildi frá kl. 07:00 að morgni laugardagsins 19. ágúst og standa til kl. 01:00 eftir miðnætti.

Athygli skal vakin á því að Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram kl. 8:40–16:10 á Menningarnótt og eru frekari götulokanir tengdar því. Íþróttabandalag Reykjavíkur er framkvæmdaaðili hlaupsins. Frekari upplýsingar um hlaupið, hlaupleiðir og tímasetningar má finna á www.rmi.is

Munum að umferðalögin gilda alla daga ársins! Lögreglan mun sekta þá sem leggja ólöglega. Ökutækjum sem lagt er ólöglega og/eða hindra aðgengi lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna verða flutt burt og vistuð hjá Vöku. Er það gert til þess að tryggja aðgengi öryggisaðila ef slys ber að garði.

Verður flugeldasýning á Menningarnótt?

Já, það verður flugeldasýning og er hún lokadagskrárliður Menningarnætur. Hefst flugeldasýningin kl. 23:00 eða strax að loknum tónleikum á Arnarhóli. 

Hvernig er hægt að komast í miðborgina á Menningarnótt?

Hægt er að komast í miðborgina með ýmsu móti, með almenningssamgöngum, labbandi, hjólandi, á rafskútum eða akandi.

Strætó mun ferja gesti úr öllum hverfum borgarinnar frá morgni til kvölds samkvæmt gjaldskrá. Tíðni ferða verður aukin og eru allir hvattir til að kynna sér allar upplýsingar um ferðir og annar á vef Strætó.

Eftir kl. 22:30 mun leiðarkerfið verða rofið og öllum vögnum beint á Sæbraut við Sólfarið þar sem farið verður í það að ferja fólk heim eftir flugeldasýningu. Frítt er í Strætó á meðan eða frá klukkan 23.00 til 01.00. Ekki verður hægt að taka strætó frá öðrum stöðum en Sæbraut eftir kl. 22:30–01:00. Ekið verður í öll hverfi á Höfuðborgarsvæðinu.

Akstur næturstrætó tekur við kl. 01.00 eftir miðnætti samkvæmt gjaldskrá.

Fólk sem vill gjarnan koma á bílnum sínum í miðborgina ættu að hafa í huga að bílastæði verða að skornum skammti, og því er tilvalið að leggja bílnum í Laugardal eða Borgartúni og fá frítt far á hátíðarsvæðið í miðborginni. Þannig komast allir hratt og örugglega inn á hátíðarsvæðið. Skutlurnar ganga frá kl. 07.30 til 01.00 frá Laugardalshöll með viðkomu á stoppustöðvum strætó í Borgartúni og Hlemmi og þaðan beinustu leið upp að Hallgrímskirkju. Skutlustöðvar verða merktar.   

Hjólagrindur eru víða um miðborgina meðal annars við  Austurbæjarskóla, Lækjartorgi, Ráðhúsið, Hörpu tónlistahús og Tækniskólann.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um staðsetningar á hjólastæðum í miðborginni. 

Rafskútusvæðin verða á eftirfarandi svæðum: 

  • Við Tjarnargötu 4 (Bílastæði við Happdrætti Háskóla Íslands) 
  • Við Skúlagötu  
  • Við Vörðuskóla v/ Barónsstíg 
  • Við Háskóla Íslands
  • Kjarvalsstöðum

Aðgengi fatlaðs fólks á Menningarnótt

Hluti miðborgarinnar verður lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða litlar sem engar undantekninga gefnar á því.  En leitast er við, eftir bestu getu, að tryggja aðgengi allra að hátíðarsvæðinu.

Hjólastólapallar verða fyrir framan sviðið á tónleikunum í Hljómskálagarði og á Arnarhóli til að tryggja aðgengi allra á tónleikunum.

Bílastæði fyrir fatlað fólk

Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Skúlagötu, vestan við Olís, sérstakt svæði sem eingöngu verður nýtt undir bílastæði fyrir P merkta bíla. Stæðið verður vaktað.
  • Við Tækniskólann
  • Í eftirfarandi bílastæðahúsum eru sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk
    • Ráðhúsi (eftir kl. 16.00)
    • Vesturgötu
    • Vitatorgi
    • Stjörnuporti
    • Hörpu (aðgengi frá kl. 14:00 - 21.00)

Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks

Hægt er að panta akstur á vefnum eða í síma 540 2727.

Akstur er frá kl. 07:30–01:00
Seinasta ferð er kl. 01:00

  • Almennur opnunartími á laugardögum er kl. 10:00–14:00
  • Fyrir kl. 10:00 og eftir kl. 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
  • Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.
  • Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.

Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:

  • Skólavörðuholti – bílastæði við Hallgrímskirkju
  • N1 Hringbraut – bílastæði við N1
  • Túngötu - bílastæði á horni við Suðurgötu
  • Sjávarútvegsráðuneyti – bílastæði á Skúlagötu 6
  • EKKI er stöðvað við Ráðhúsið

Viðbúið er að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.

Salernisaðstaða

Salerni fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Á Miðbakka
  • Í Hljómskálagarði
  • Á bílastæði við Tækniskólann
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
  • Í Ráðhúsinu – opið til kl. 19:00
  • Í Hörpu – opið til kl. 22:00
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til kl. 22:00

Hér er hægt a nálgast götulokunarkort á Menningarnótt. 

Er sniðugt að koma á reiðhjóli í miðborgina á Menningarnótt?

Það er alltaf mælt með því að nýta hjólið til að koma í miðborgina á Menningarnótt ef fólk hefur tök á því. En það getur verið erfitt að hjóla um í mannmergð og hvatt er því til að læsa hjólin við einhverja af þeim fjölda reiðhjólagrinda sem eru á víð og dreif um miðborgina, meðal annars hjá Austurbæjarskóla, hjá Hörpu tónlistarhúsi, í Pósthússtræti, á Lækjartorgi, í Hafnarstræti og viðTækniskólann svo eitthvað sé nefnt.

Hér er hægt að nálgast nákvæmari upplýsingar um staðetningar hjólastæða í miðborginni.

Er hægt að koma á rafskútu í miðborgina á Menningarnótt?

Fólk er eindregið hvatt til að nýta sér rafskútur sem eru vistvænn samgöngumáti til að komast til og frá miðborginni á Menningarnótt.  

Í samráði við rafskútufyrirtækin verður hámarkshraði rafskútanna lækkaður í miðborginni á Menningarnótt, auk þess sem aðeins verður hægt að enda ferðir og hefja ferðir á ákveðnum stæðum í miðborginni.         

Rafskútustæðin verða á eftirfarandi svæðum: 

  • Við Tjarnargötu 4 (Bílastæði við Happdrætti Háskóla Íslands) 
  • Við BSÍ 
  • Við Skúlagötu  
  • Við Vörðuskóla v/ Barónsstíg 
  • Við Háskóla Íslands

 

Hvernig verður þjónustu Strætó háttað á Menningarnótt?

Strætó mun ferja gesti úr öllum hverfum borgarinnar frá morgni til kvölds samkvæmt venjulegri gjaldskrá. Tíðni ferða verður aukin og er fólk vinsamlegast beðið um að kynna sér áætlun strætó á Menningarnótt

Eftir klukkan 11.30 verður leiðarkerfið rofið og öllum vögnum beint á Sæbraut við Sólfarið. Frítt er í strætó meðan verið er að ferja fólk heim eftir flugeldasýningu. Ekki verður hægt að taka strætó frá öðrum öðrum stöðum en við Sæbraut eftir kl. 22:30 – 01:00. Ekið verður í öll hverfi á Höfuðborgarsvæðinu.

Akstur næturstrætó tekur við kl. 01:00 eftir miðnætti samkvæmt gjaldskrá. 

Gott er fyrir fólk sem vill gjarnan koma á bílnum sínum í miðborgina að hafa í huga að bílastæði verða af skornum skammti í miðborginni á Menningarnótt en sérstök skutluþjónusta Strætó verður starfrækt frítt fyrir þau sem vilja komast hratt og örugglega inn á hátíðarsvæðið. Hægt er að leggja bílum í Laugardal og Borgartúni, og munu skutlurnar ganga frá kl 07:30 til 01:00 frá Laugardalshöll með viðkomu á stoppustöðvum strætó í Borgartúni og Hlemmi og þaðan beinustu leið upp að Hallgrímskirkju. Skutlustöðvar verða merktar sérstaklega. 

Er hægt að taka leigubíl á Menningarnótt?

Hægt verður að komast á leigubíl í miðborgina, en akstur leigubíla innan lokunarsvæðis er bannaður, svo mælt er með því að skipuleggja sig samkvæmt því. 

Leigubílastöðvar verða á fjórum stöðum í útjaðri hátíðarsvæðisins. Við Hallgrímskirkju, Skúlagötu, BSÍ og Túngötu á bílastæði við Landakotskirkju, auk þess sem hægt er að fá leigubíl til að aka hvert sem er, svo fremi sem það er ekki innan lokunarsvæðis.

Verður hægt að leggja einkabílnum í miðborginni á Menningarnótt?

Takmarkað magn af bílastæðum verður í boði í miðborginni á Menningarnótt. Hægt er leggja í eftirfarandi bílastæðahús; í Ráðhúsinu, Vesturgötu, Vitatorgi, Stjörnuporti og Höfðatorgi. Aðgengi að bílastæðakjallara Hörpu verður frá kl. 14:00–21:00. Bílastæðahúsin, Traðakot og Kolaporti er lokað á Menningarnótt. Venjulegt gjald gildir.

Leggðu nær til að komast fjær!

Fyrir fólk sem gjarnan vill koma á bílnum sínum í miðborgina er bent á að sérstök skutluþjónusta Strætó verður starfrækt fyrir þau sem vilja komast hratt og örugglega inn á hátíðarsvæðið. Hægt er að leggja bílum í Laugardal og Borgartúni, og munu skutlurnar ganga kl. 07:00–01:00 frá Laugardalshöll með viðkomu á stoppustöðvum strætó í Borgartúni og Hlemmi og þaðan beinustu leið upp að Hallgrímskirkju. Skutlustöðvar verða merktar.  

Virðum íbúa miðborgarinnar og leggjum ekki í einkabílastæði eða skerðum aðgengi að innkeyrslum íbúa.

Munum að umferðalögin gilda alla daga ársins! Lögreglan mun sekta þá sem leggja ólöglega. Ökutækjum sem lagt er ólöglega og/eða hindra aðgengi lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna verða flutt burt og vistuð hjá Vöku. Er það gert til þess að tryggja aðgengi öryggisaðila ef slys ber að garði.

Kostar eitthvað á viðburði Menningarnætur?

Allir viðburðir sem fara fram á Menningarnótt eru öllum að kostnaðarlausu. Ekki er hægt að tryggja ótakmarkað aðgengi á alla viðburði en misjafnt er hvar viðburðir fara fram. Sums staðar þarf að taka tillit til fjöldatakmarkana – en allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á Menningarnótt.

Upplýsingar um salerni í miðborginni á Menningarnótt

Komið verður fyrir salernum á víð og dreif um miðborgina, svo fólk þurfi ekki að leita inn á veitingahús til að komast á salerni.

Salerni fyrir fatlað og ófatlað fólk verða meðal annars:

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Á Miðbakka
  • Í Hljómskálagarði
  • Á bílastæði við Tækniskólann
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarðinn)
  • Í Ráðhúsinu – opið til kl. 18:00
  • Í Hörpu – opið til kl. 22:00
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til kl. 22:00
  • …og víðar.

Upplýsingar til ferðaþjónustuaðila á Menningarnótt

Í samráði við Samtök ferðaþjónustuaðila og viðbragðsaðila verða rútustæði á Menningarnótt við Túngötu, Hallgrímskirkju og á Skúlagötu. Stæðin eru einungis til þess að taka á móti og skila af sér farþegum.  

  • Túngata fyrir neðan Landakotskirkju: Aðstaða fyrir minni rútubíla. Bílastæði við Hallgrímskirkju, Eiríksgötumegin: Aðstaða fyrir minni og stærri rútubíla. Aðgengi við gatnamót Eiríksgötu og Snorrabrautar). Útakstur aftur niður Njarðargötuna.
  • Skúlagatan (vestan Olís): aðstaða fyrir stærri rútubíla. Aðgengi við gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu, og niður Barónsstíg og Skúlagötu. En eftir kl. 14:00–21:00 verður hægt að aka inn Skúlagötuna frá Sæbraut. Útakstur er sama leið tilbaka. Á meðan á maraþoni stendur verður greið leið um Borgartúnið og þaðan á Snorrabraut/Hverfisgötu. 

Aðeins bílar vel merktir löggildu ferðaþjónustufyrirtæki mega nýta sér þessa þjónustu sem tilgreind er hér að ofan. 

Sleppistæði nr. 1, 2, 3, 4, 5 og 6 verða óvirk á Menningarnótt kl. 07:00–01:00.

Hér er nægt að nálgast götulokunarkort á Menningarnótt 2023. 

Upplýsingar fyrir notendur ferðaþjónustu fatlaðra á Menningarnótt

Pant akstursþjónusta fatlaðs fólks sér um akstur á Menningarnótt

Hægt er að panta akstur á vefnum eða í síma 540 2727.

Akstur er frá kl. 07:30–01:00
Seinasta ferð er kl. 01:00

  • Almennur opnunartími á laugardögum er kl. 10:00–14:00
  • Fyrir kl. 10:00 og eftir kl. 14:00 er aðeins hægt að panta stakar ferðir, afpanta ferðir og fá svör við brýnum erindum.
  • Hægt er að bóka ferð með tveggja tíma fyrirvara á Menningarnótt eins og vani er.
  • Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með fyrirvara til að auðvelda skipulagningu akstursins.

Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:

  • Skólavörðuholti – bílastæði við Hallgrímskirkju
  • N1 Hringbraut – bílastæði við N1
  • Túngötu - bílastæði á horni við Suðurgötu
  • Sjávarútvegsráðuneyti – bílastæði á Skúlagötu 6
  • EKKI er stöðvað við Ráðhúsið

Viðbúið er að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.

Hvernig er fyrirkomulagi Reykjavíkurmaraþonsins háttað?

Íþróttabandalag Reykjavíkur er skipuleggjandi og framkvæmdaraðili Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og eru allar upplýsingar að finna á vef Reykjavíkurmaraþons.