Stórar atvinnulóðir seldar í Hádegismóum

Reykjavíkurborg hefur selt tvær stórar lóðir við Hádegismóa og eru þá aðeins tvær lóðir eftir á þessum stað. Kaupandi nýtur afsláttarkjara sem nýlega voru samþykkt af borgarráði um sölu atvinnulóða og greiðir því 266 milljónir fyrir báðar þessar lóðir.

Fasteignafélaginu Frey var úthlutað lóðunum númer 1 og 3 við Hádegismóa á síðasta fundi borgarráðs. Lóðirnar eru tæpir 24.000 fermetrar að stærð greiðir Freyr ehf. 266.080.500,- kr. fyrir byggingarétt á lóðunum.  Freyr ehf. er í eigu sömu aðila og heildverslunin Garri ehf.

Lóðirnar við Hádegismóa eru byggingahæfar og má sjá nánari upplýsingar um þær á lóðavef Reykjavíkurborgar.