Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Grundarhverfis vegna lóðanna nr. 1, 3, 5 og 7 við Norðurgrund á Kjalarnesi. Í breytingunni felst m.a. afmörkun nýrra byggingarreita og breyting á húsagerð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. (Hér til hægri)

Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,  frá 26. apríl 2013 til og með 12. júní 2013. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðunni,  www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega, til umhverfis – og skipulagsviðs, b.t. skipulagsfulltrúa,  eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 12. júní 2013.  Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.