Yfirlýsing frá Barnavernd

""

Eftirfarandi er yfirlýsing Barnaverndarnefndar Reykjavíkur  vegna máls stuðningsfulltrúa hjá Reykjavíkurborg

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur harmar mjög að starfsmaður á vegum nefndarinnar hafi beitt börn kynferðislegu ofbeldi. Ekkert barn á að þola ofbeldi og síst af öllu í úrræðum á vegum barnaverndaryfirvalda.

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur tekur málið mjög alvarlega og hefur unnið að því að afla upplýsinga frá því að lögregla tilkynnti um málið í janúar sl.

Fram kom í fjölmiðlum að tilkynningar vegna málsins hefðu borist símleiðis til Barnaverndar Reykjavíkur á árunum 2002 og 2008. Í fréttum RÚV kl. 19 í gær var svo ranglega sagt að slíkar tilkynningar hefðu einnig borist árin 2013, 2015 og 2017. Leiðrétting var birt síðar í fréttatímanum en engu að síður ber að harma að slíkar rangfærslur komi fyrir þegar fjallað er um  jafn viðkvæmt og alvarlegt mál á opinberum vettvangi.

Formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur hefur þegar átt fund með félagsmálaráðherra. Unnið verður með ráðherra, lögreglu og öðrum sem hlut eiga að máli að breytingum á lögum og reglum til að reyna að fyrirbyggja að mál af þessu tagi komi fyrir aftur.

Á vegum Reykjavíkurborgar verður kannað sérstaklega hvers vegna ekki var brugðist við tilkynningu sem barst til borgarinnar með símtali árið 2008. Ekki hefur fengist staðfesting frá þeim sem kunna að hafa sent inn hliðstæða tilkynningu árið 2002.

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að allir fletir þessa máls verði kannaðir rækilega í samvinnu við innri endurskoðun borgarinnar. Framkvæmt verður sérstakt áhættumat á allri starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur og allir verkferlar varðandi ábendingar og tilkynningar til Barnaverndar endurskoðaðir með það að markmiði að koma í veg fyrir að slík mistök endurtaki sig.

Virðingarfyllst,

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur

Tómas Hrafn Sveinsson

Guðrún Ögmundsdóttir

Andri Óttarsson

Sólveig Ásgrímsdóttir

Kolbrún Baldursdóttir