Virkjun kosningaréttarins

Stjórnsýsla

""
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar stendur fyrir opnum fundi um virkjun kosningaréttarins mánudaginn 16. nóvember kl 17 á Hallveigastöðum.
 
Fundurinn hefst á því að Eva H. Önnudóttir, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, mun fjalla um þátttöku mismunandi hópa í kosningum og af hverju fólk tekur þátt í kosningum. Auk þess mun hún fjalla um aðgerðir sem farnar hafa verið til þess að auka þátttöku og hvaða árangur þær hafa borið.
 
Að því erindi loknu fara fram pallborðsumræður þar sem ræddar verðar spurningar varðandi fundarefnið s.s. hvaða þýðingu kosningarétturinn hafi í nútímasamfélagi? Er virkni hópa samfélagsins misjöfn? Ef svo er, hvað veldur því? Hvernig má bæta úr? Þarf sérhæfðar aðgerðir til þess að virkja mismunandi hópa? Hverjar gætu þær aðgerðir verið?
 
Pallborðið skipa:
 
Guðrún Ágústsdóttir frá öldungaráði Reykjavíkurborgar
 
Tomasz Pawel Chrapek frá fjölmenningarráði Reykjavíkurborgar
 
Líf Magneudóttir frá mannréttindaráði Reykjavíkurborgar
 
Steindór Gestur Völundur Guðmundarson Waage frá Reykjavíkurráði ungmenna 
 
Umræðum stýrir Eva Einarsdóttir varaformaður stjórnkerfis- og lýðræðisráðs.