Vilt þú koma fram á fjölmenningardeginum?

Mannréttindi

""

Laugardaginn 9. maí verður haldinn hátíðlegur fjölmenningardagur Reykjavíkur. Við erum að leita að allskonar listrænu fólki til að taka þátt í dagskrá í Tjarnarbíói á milli 14.30 og 17.00.

Einungis stutt atriði koma til greina (2-10 mín.). Atriðið má vera dansýning, stutt leikrit, ljóð, uppistand eða eitthvað annað skemmtilegt sem ykkur dettur í hug. Athugið að ekki er greitt fyrir þátttökuna.

Öll þau sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum viðburði eru hvött til að fylla út skráningareyðublað.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar vinsamlegast hafið samband í síma 411 4159 (Adda) 411 4163 (Mia) eða sendið tölvupóst á netfangið fjolmenningardagur@reykjavik.is