Vilt þú efla opið félagsstarf í Breiðholti?

Velferð

""

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrktarsjóðinn Heita pottinn – félagsstarf í Breiðholti. Sjóðnum er ætlað að styrkja nýsköpun og nýbreytni í opnu félagsstarfi í Breiðholti auk eflingar á þeim verkefnum sem þegar eru í gangi. Umsóknarfrestur er til og með mánudags 7. nóvember 2016. Allar upplýsingar um sjóðinn má sjá með því að smella hér.

Reykjavíkurborg rekur tvær félagsmiðstöðvar með opnu félagsstarfi fyrir fólk á öllum aldri í Breiðholti; í Árskógum og Gerðubergi.