Verndaráætlun fyrir Laugarnestanga staðfest

Umhverfi Skipulagsmál

""
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar, undirrituðu í dag staðfestingu á verndaráætlun fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga. 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar, undirrituðu í dag staðfestingu á verndaráætlun fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga. Tilgangur verndaráætlunar fyrir minjasvæðið er að tryggja verndun fornleifanna á sem bestan hátt og veita leiðsögn um samspil verndunar og nýtingar, skipulags og reksturs.

Flestar tengjast minjarnar búsetu á Laugarnesbænum auk hjáleiga og kirkju en einnig er að finna minjar tengdar tíð embættismannabústaðar og holdsveikraspítala á staðnum auk stríðsminja. Tvennar minjar, bæjarhóll Laugarnesbæjarins og kirkjugarður, eru friðlýstar og er Laugarnes einn af sjö stöðum í Reykjavík þar sem friðlýstar fornleifar er að finna.
 
Á minjasvæðinu á Laugarnestanga eru friðlýstar fornleifar auk aldursfriðaðra fornleifa og gilda strangari reglur um þær fyrrnefndu. Út frá ystu mörkum friðlýstra fornleifa er 100 m friðhelgað svæði, en 15 m út frá ystu mörkum aldursfriðaðra fornleifa. Allar framkvæmdir innan friðhelgaðs svæðis eru óheimilar án leyfis Minjastofnunar Íslands.
 
Minjastofnun ber ábyrgð á minjunum og skal ríkið bera kostnað af viðhaldi  friðlýstra fornleifa. Landeigandi skal hins vegar bera kostnað af viðhaldi umhverfis minjanna, hvort sem er friðaðra eða friðlýstra, sem og viðhaldi aldursfriðaðra minja. Verndaráætlun þessi skal endurskoðuð annað hvert ár.