Verkís og Orkuveitan fá samgönguviðurkenningu

Samgöngur Umhverfi

""

Verkís og Orkuveita Reykjavíkur hljóta Samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2017 og ræður vistvænn ferðamáti starfsmanna og fordæmi fyrirtækjanna í vistvænum rekstri þar mestu um val dómnefndar.

Verkís býður starfsfólki góða aðstöðu fyrir hjól, hleðsla er fyrir rafbíla, bílastæðum var fækkaði hjá fyrirtækinu og starfsfólk fær samgöngustyrk. Orkuveitan greiðir samgöngustyrk til sinna starfsmanna og fylgst er með því hvernig fólk kemur til vinnu og hvað hindri það í að velja vistvænar samgöngur. Orkuveitan er með 65 vistvænar bifreiðar sem nýtast starfsfólki. Þetta er meðal þess sem fyrirtækin leggja að mörkum auk þess sem bæði fyrirtækin vinna samkvæmt loftlagsmarkmiðum Festu og Reykjavíkurborgar.

Auglýst var eftir umsóknum eða tilnefningum frá fyrirtækjum, félagsamtökum, stofnunum og einstaklingum. Dómnefndin byggir val sitt á árangri að aðgerðum sem fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir eða einstaklingar hafa gripið til í þeim tilgangi að t.d. einfalda starfsfólki að nýta sér aðra samgöngumáta en einkabílinn, draga úr umferð á sínum vegum og/eða stuðla að notkun vistvænna orkugjafa.

Sjö fyrirtæki komu fyrir valnefnd á þessu ári og voru það auk Verkís og Orkuveitunnar, Advania, Alta, Arionbanki, Háskólinn í Reykjavík og Seðlabanki  Íslands.

Í ávarpi borgarstjóra kom fram að flóran í vistvænum samgöngumáta verður fjölbreyttari með hverjum degi í Reykjavík, og það er ekki síst að þakka nýrri og bættri starfsmannastefnu fyrirtækja eins og þeirra sem tilnefnd voru til samgönguviðurkenninga í ár.

Þess má að lokum geta að Reykjavíkurborg  tók upp samgöngustyrk 1. september sl. og þegar hafa yfir 1400 starfsmenn skráð sig til leiks, skilja bílinn eftir heima og nýta vistvænar samgöngur til og frá vinnu.

Meira um val dómnefndar