Velkomin á Vetrarhátíð

Mannlíf Menning og listir

""

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1. – 4. febrúar nk. Hátíðin er nú haldin í 17. sinn og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Megintilgangur Vetrarhátíðar er að skemmta fólki á höfuðborgarsvæðinu og gefa því tækifæri til að njóta menningar, lista, íþrótta og útiveru í eigin sveitarfélagi og/eða heimsækja nágranna sína í nærliggjandi sveitarfélagi.

Setning Vetrarhátíðar 2018 fer að þessu sinni fram úti á Granda nánar tiltekið við Marshallhúsið þann 1. febrúar klukkan 19.45. Opnunaratriðið er ljósainnsetningin Örævi eftir Valdimar Jóhannsson, Ernu Ómarsdóttur, Pierre Alain Giraud og Íslenska dansflokkinn sem verður varpað á olíutankana. Tónlist við verkið er eftir hljómsveitina Sigur Rós. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson setur hátíðina. Að setningu lokinni geta gestið farið í Marshallhúsið og skoðað sig um. Marshall restaurant verður með tilboð á veitingum.

Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af fjórum meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuði og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Allir þessir viðburðir eru ókeypis auk þess sem frítt er fyrir börn yngri en 16 ára á Snjófögnuðinn í Bláfjöllum.

Safnanótt – Geimverur, vasaljósaferðir og háskaleikar

Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 2. febrúar 2018 en þá opna fimmtíu söfn dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá frá klukkan 18:00 til klukkan 23.00. Lögð verður áhersla á að bjóða upp á óhefðbundna viðburði þetta kvöld og veita gestum nýja sýn á söfnin.

Klukkan 19.00 verður verkinu Ekkó (Echo) varpað á Safnahúsið við Hverfisgötu  en seyðfirska listahátíðin List í Ljósi  stendur að gjörningnum í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkur.  Ekkó (Echo) er eftir Nýsjálensku listamennina Samuel Miro og Delainy Kennedy sem mynda listahópinn Nocturnal (nocturnal.nz).

Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið Safnanætur fram eftir kvöldi sér að kostnaðarlausu.

Frítt er í sérstakan Safnanæturstrætó á milli allra safnanna.

Á Safnanótt fer fram Safnanæturleikur. Þátttakendur svara laufléttum spurningum og safna stimplum frá mismunandi söfnum sem þeir heimsækja. Þátttökublað er hægt að nálgast á öllum söfnum sem taka þátt í Safnanótt.  Lausnum er skilað í þar til gerða kassa á söfnunum og eru glæsilegir vinningar í boði. Dregið verður úr Safnanæturleiknum 15. febrúar nk.

Sundlauganótt – Tónleikar, zumba og sundlaugaleikhús

Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 3. febrúar 2018 en þá verður frítt í sund frá klukkan 18:00 til 22.00 í níu sundlaugum höfuðborgarsvæðisins. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði í laugunum og munu gestir fá að upplifa einstaka og óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Tónlist, dans og leikhús verða allsráðandi, þar sem gestir eru hvattir til að taka þátt með því að dansa, syngja eða slaka á og njóta stundarinnar.

Snjófögnuður  

Sunnudaginn 4. febrúar fögnum við svo snjó og birtu í Bláfjöllum á lokadegi Vetrarhátíðar ef verður leyfir. Íbúum höfuðborgarsvæðisins verður boðið að njóta skemmtilegrar dagskrár og verður frítt fyrir börn yngri en 16 ára .

Skoðið fjölbreytta dagskrá Vetrarhátíðar á heimasíðu vetrarhatid.is 

Orkusalan er aðalbakhjarl Vetrarhátíðar í ár og hátíðin unnin í samstarfi við HljóðX.