Úrslitin í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, ráðast í kvöld en alls keppa átta skólar til úrslita.
Skólarnir sem keppa til úrslita í Borgarleikhúsinu í kvöld eru Fellaskóli, Laugalækjarskóli, Seljaskóli, Langholtsskóli, Ingunnarskóli og Réttarholtsskóli.
Þau tvö lið sem dómnefnd valdi í útslitakeppnina eru úr Hagaskóla og Hlíðarskóla. Sýnt verður beint frá úrslitakvöldinu á Skjá einum og hefst útsendingin klukkan 19:00.