Umsóknir um götu- og torgsölu frá 15. febrúar

Mannlíf Stjórnsýsla

""

Opnað verður fyrir úthlutun á nýjum leyfum fyrir götu- og torgsölu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 9:00  á vef Reykjavíkurborgar og þarf að vera með virkt aðgengi að Mínum síðum í Rafrænu Reykjavík til að geta sótt um.

Götusala er leyfisskyld og tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri utanhúss svo sem á torgum, gangstéttum og í almenningsgörðum. Ekki þarf þó að sækja um leyfi fyrir tombólum barna og ungmenna.

Gerðar eru kröfur um góða umgengni og að starfsemi standist allar heilbrigðisreglur. Götu- og torgsala á að auka fjölbreytni og þjónustu í sátt við umhverfið og sóst er eftir fjölbreyttri þjónustu.

Jafnræði við úthlutun

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ræður það forgangi við úthlutun. Reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“ er þannig í gildi og skapar ákveðið jafnræði með umsækjendum.  Eins og áður segir verður opnað fyrir umsóknir um götu- og torgsölu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 9:00  á „mínum síðum” á vef Reykjavíkurborgar (Rafræn Reykjavík). Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nýja samþykkt og hafa til reiðu þau fylgiskjöl sem fylgja þurfa umsókn.  Minnt er á að öll matsala er leyfisskyld og sótt er um leyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þá er áréttað að umsóknir sem berast fyrir 15. febrúar eru ekki gildar.

Upplýsingasíða fyrir götu- og torgsölu – reykjavik.is/torgsala