Truflun á umferð vegna WOW Tour of Reykjavík

Mannlíf Íþróttir og útivist

""

Truflun verður á umferð fyrir hádegi laugardaginn 9.september og sunnudaginn 10.september. Bílstjórar eru hvattir til að kynna sér vel lokanir á tourofreykjavik.is.

Hjólreiðaviðburðurinn WOW Tour of Reykjavik verður haldinn í annað sinn um helgina. WOW Tour of Reykjavík býður upp á fjölbreyttar hjólaleiðir fyrir alla þá sem áhuga hafa á hjólreiðum en keppnin sjálf er haldin í Laugardalnum og ýmist hjólað alla leið að Þingvallavatni eða styttri hringi í Laugardal og miðborginni. Sérstök barnabraut verður fyrir yngstu kynslóðina þar sem sápukúlur, bleikur reykur og tónlist gleðja þátttakendur á leiðinni.

Búast má við að truflanir verði á umferð fyrir hádegi laugardaginn 9.september og sunnudaginn 10.september. Bílstjórar eru hvattir til að kynna sér vel lokanir á tourofreykjavik.is

Á laugardagsmorguninn verður truflunin aðallega utan borgarmarkanna, á Vesturlandsvegi og Þingvallavegi milli kl.8:00 og 10:00 og aðreinum inná Suðurlandsveg og Vesturlandsveg milli 11:00 og 12:30. Þá verða Grafningsvegur og Nesjavallarvegur alveg lokaðir frá kl.10:30-12:00.

Á sunnudagsmorguninn verður hjólað úr Laugardal niður í miðbæ og í kringum Tjörnina. Þá verða götur í kringum Tjörnina alveg lokaðar og einnig Engjavegur, Sæbraut og Skeiðarvogur en Suðurlandsbraut er lokuð að hluta. Truflanir verða á öðrum leiðum en umferð hleypt í gegn þegar færi gefst. Sjá nánar á tourofreykjavik.is.

Skráning í Tour of Reykjavik er í fullum gangi á tourofreykjavik.is en netskráningu lýkur í kvöld fimmtudaginn 7.september kl.23:00. Einnig verður hægt að skrá sig í Laugardalshöll föstudaginn 8.september kl.15:00-18:00 og frá kl.7:00 báða keppnisdagana en þangað þurfa allir þátttakendur að sækja skráningargögn sín.