Tjörnin skal hún heita

Skóli og frístund

""

Á níunda tug tillagna bárust í hugmyndasamkeppni um nafn á nýja frístundamiðstöð.

Ný sameinuð frístundamiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skal heita Tjörnin. Þetta varð að niðurstöðu eftir hugmyndasamkeppni meðal íbúa en tillögur bárust um 85 nöfn.

Valnefnd, skipuð fulltrúum ungmennaráða, starfsmanna og hverfisráða, fór yfir allar tillögurnar og lagði fimm tillögur í opið val á netinu.

Á fimmta hundrað manns tók þátt í valinu þar sem niðurstaðan varð að kalla nýju frístundamiðstöðina Tjörnina. Nýja nafnið þykir vel við hæfi þar sem Tjörnin er í miðju hverfanna sem frístundamiðstöðin mun þjóna og sameiningartákn þeirra.

Tjörnin verður til með sameiningu Frostaskjóls og Kamps og verður til húsa í Frostaskjóli.