Þjóðhátíðargleði á Árbæjarsafni

Mannlíf Menning og listir

""

Fallegir þjóðbúningar verða í aðalhlutverki á Árbæjarsafni  17. júní venju samkvæmt. Gestir eru hvattir til að mæta í eigin búningum. 

Fjallkonu safnsins verður skautað kl.14 og geta gestir fylgst með því hvernig faldur, faldblæja og spöng eru sett upp og borin við skautbúning.

Meðlimir Fornbílaklúbbsins munu safnast saman á safninu og verða með bíla til sýnis á safninu frá kl. 13-16.

Ýmislegt annað verður um að vera á safninu þennan dag. Á baðstofuloftinu verður spunnið á rokk og bakaðar lummur í eldhúsinu. Í safnhúsunum má sjá fjölmargar sýningar eins og Neyzlan – Reykjavík á 20. öld (Lækjargata 4), Hnappheldan – brúðkaup á Árbæjarsafni (skrúðhúsið) og Hjáverkin (Kornhúsið). Fyrir yngstu kynslóðina er tilvalið að heimsækja sýninguna Komdu að leika! en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkunum er frjálst að leika sér með. Auk þess er fjölbreytt úrval af útileikföngum til staðar sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur.

Að vanda verður heitt á könnunni í Dillonshúsi.

Frá býli til borgar 

Á sunnudaginn 18. júní verður í Árbæjarsafni leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík í gegnum tíðina.  Fjöldi sýninga eru á safninu þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil en meðal þeirra eru Neyzlan – Reykjavík á 20. öld (Lækjargata 4), Hjáverkin - atvinnusköpun kvenna í heimahúsum 1900-1970 (Kornhúsið) og Hnappheldan – brúðkaup á Árbæjarsafni (skrúðhúsið). 

Að venju verður ýmislegt um að vera í safnhúsunum. Prentarinn í Miðhúsi verður að störfum og leyfir gestum að spreyta sig. Húsfreyjan í Hábæ þvær og hengir upp þvott, sópar og dyttir að heimilinu og býður upp á nýbakaðar og ilmandi lummur. Í Árbæ situr húsfreyjan og þeytir rokkinn og spinnir ull, og í haga má sjá búsmalann á beit.

Þá verður hægt að panta sér kaffi og nýbakaðar vöfflur í Dillonshúsi.

Ókeypis aðgangur fyrir börn, eldri borgara, öryrkja og menningarkortshafa. Opið frá 13-16.