Taktu þátt! Forvarnardagurinn 2017

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Forvarnardagurinn 2017 var kynntur í Kelduskóla í morgun en Forvarnardagurinn er miðvikudaginn 4. október. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Guðni T. Jóhannesson, forseti Íslands og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri ávörpuðu nemendur Kelduskóla, og sögðu frá mikilvægi forvarna og hversu langt Ísland hefur náð í þeim efnum.

Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna.

Á Forvarnadaginn, miðvikudaginn 4. október, munu forseti Íslands, borgarstjóri, forsvarsmenn fjöldahreyfinga og aðrir fulltrúar þeirra, sem standa að deginum, heimsækja skóla um allt land og heyra í nemendum um hugmyndir þeirra og tillögur að forvörnum.

Niðurstöður um áfengis- og vímuefnaneyslu íslenskra ungmenna byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt. Fjallað var ítarlega um rannsóknirnar og niðurstöðurnar í danska dagblaðinu Politiken í morgun.

Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.