Sýningalok á Augans börn í Ásmundarsafni, og Því meira, því fegurra og Panik í Hafnarhúsi

Mannlíf Menning og listir

""

Þremur sýningum lýkur mánudaginn 1. maí: Þetta eru sýningarnar Augans börn í Ásmundarsafni, og Því meira, því fegurra og Panik í Hafnarhúsi.

Þremur sýningum lýkur mánudaginn 1. maí: Þetta eru sýningarnar Augans börn í Ásmundarsafni, og Því meira, því fegurra og Panik í Hafnarhúsi.

Á sýningunni Augans börn má sjá verk eftir þá Ásmund Sveinsson (1893 – 1982) og Þorvald Skúlason (1906 – 1984) sem voru í hópi þeirra listamanna sem stöðugt voru að tileinka sér ný viðhorf innan myndlistarinnar um miðja síðustu öld.

Sýningin Því meira, því fegurra varpar sérstöku ljósi á verk Errós sem byggjast á ofgnótt og ofmettun. Slík myndgerð hefur alla tíð verið mikilvægur þáttur í listsköpun hans og má rekja aftur til ungdómsverka hans. 

Í innsetningunni Panik umbreytir myndlistarkonan Ilmur Stefánsdóttir rýminu með myndbandsverkum sem virðast samtvinnuð burðarvirki sýningarsalarins og sýna konu vera að hamast við eitthvað sem ekki hefur augljósan tilgang.