Sýning um nýjar íbúðir sett upp í Ráðhúsinu

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Í dag er verið að setja upp sýningu í Ráðhúsinu um nýjar íbúðir í Reykjavík.  Sýningin verður opnuð í fyrramálið í tengslum við kynningarfund borgarstjóra um sama efni og verður sá fundur endurtekinn nú á fimmtudag.  Sýningin hangir uppi til 19. nóvember. 

Í Reykjavík er áætlað að byggðar verði um 5.000 nýjar íbúðir á næstu fjórum árum. Framkvæmdir eru ýmist hafnar eða á teikniborðinu. Á sýningu og fundunum verður sagt frá byggingaráætlunum fyrirtækja og skipulagsáformum Reykjavíkurborgar.   Hvar verða íbúðirnar, hvenær verða þær tilbúnar og hver er að byggja þær?  
 
Kynningarfundir borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík  eru í Ráðhúsi Reykjavíkur:
  • miðvikudaginn 12. nóvember kl. 8:30-10:00 og 
  • fimmtudaginn 13. nóvember kl. 17:00-18:30. 
 
Allir eru velkomnir á fundina og sýninguna. Það er skrifstofa eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar sem hefur veg og vanda að undirbúningi funda og sýningar. 
 
Nánari upplýsingar eru á vefslóðinni reykjavik.is/ibudir