Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040

Skipulagsmál

""

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins samþykkti á fundi sínum þann 21. mars 2014 að kynna tillögu um nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins skv. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Svæðisskipulagið, Höfuðborgarsvæðið 2040 verður sameiginleg áætlun sveitarfélaganna um náið samstarf um skipulagsmál og vöxt svæðisins næstu áratugi. Ýmis nýmæli og breytingar er að finna í tillögunni og ber þar helst að nefna vaxtarmörk um þéttbýli höfuðborgarsvæðisins, samgöngu- og þróunarás sem tengir svæðið saman og áherslu á að beina framtíðarvexti á vel tengda miðkjarna og þróunarsvæði.

Tillagan ásamt drögum að umhverfismati og öðrum fylgigögnum verður til sýnis á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, frá og með 24 mars 2013. Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu verkefnisins 

Áhugasamir geta einnig komið og sótt opna kynningarfundi á skrifstofum SSH, Hamraborg 9. Þar gefst tækifæri til að bera upp spurningar og koma með ábendingar varðandi tillöguna. Tímasetningar á opnum fundum verða:

Fimmtudagur 3. apríl frá klukkan 13:00 - 14:30 og 16:00 - 17:30
Fimmtudagur 10. apríl frá klukkan 13:00 - 14:30 og 16:00 - 17:30

Hver sá sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er hvattur til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skrifstofu SSH Hamraborg 9, 200 Kópavogi eða á netfangið ssh@ssh.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 20. apríl 2014. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.