Sundlauganótt í mögnuðu myrkri

Mannlíf Menning og listir

""

Sundlauganótt á Vetrarhátíð er í kvöld, laugardagskvöldið 4. febrúar en þá er frítt í sund í níu sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 18-23. Gestir fá að upplifa einstaka kvöldstund í sundlaugunum þar sem ljós, myrkur og gleði eru allsráðandi. Þá fer fram Norðurljósahlaup WOW í kvöld og hefst við Hörpu kl. 19.

Sundlauganótt á Vetrarhátíð er í kvöld, laugardagskvöldið 4. febrúar en þá er frítt í sund í níu sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 18-23. Gestir fá að upplifa einstaka kvöldstund í sundlaugunum þar sem ljós, myrkur og gleði eru allsráðandi. Þá fer fram Norðurljósahlaup WOW í kvöld og hefst við Hörpu kl. 19.

Dagskráin í ár er afar fjölbreytt en meðal þess sem er í boði er jóga, zumba, sundratleikur, samflot, kajaksiglingar í sundi, sundpóló, sundlaugadiskó, Improv Ísland og tónleikar með Jóni Jónssyni. Þær sundlaugar sem taka þátt í Sundlauganótt að þessu sinni eru: Álftaneslaug, Árbæjarlaug, Ásvallalaug, Klébergslaug, Lágafellslaug, Laugardalslaug, Salalaug (Sundlaugin Versölum), Sundlaug Kópavogs og Seltjarnarneslaug.

Norðurljósahlaup WOW
Í kvöld fer fram Norðurljósahlaup WOW í fyrsta skipti en um er að ræða skemmtiskokk þar sem þátttakendur verða skeyttir upplýstum armböndum sem blikka í takt við hlaupataktinn sinn. Hlaupið er 5 km. og hefst við Hörpu kl. 19 og síðan er hlaupið um miðbæinn, m.a. Ráðhús Reykjavíkur, Hallgrímskirkju og Hafnarhúsið.  Engin tímataka er í hlaupinu sem nú er haldið í fyrsta skipti. Nánari upplýsingar er að finna á: Nordurljosahlaup.is.

Snjófögnuður
Við fögnum svo snjó og birtu í Bláfjöllum sunnudaginn 5. febrúar á lokadegi Vetrarhátíðar
þar sem íbúum höfuðborgarsvæðisins er boðið að njóta skemmtilegrar viðburðadagskrár frá kl. 10-17. Frítt er fyrir 16 ára og yngri í fjallið og 20% afsláttur af skíðaleigu. Tilboð á veitingum í veitingasölu.

Myrkvun miðborgarinnar
Vetrarhátíð lýkur svo með myrkvun miðborgarinnar kl. 21-22 sunnudaginn 5. febrúar. Það er gert til að vekja athygli á hugmyndinni um myrkurgæði og til að gera fólki kleift að upplifa himinhvolfið í sinni tærustu mynd. Rafmagn verður ekki tekið af íbúðarhúsnæði og fólki er í sjálfsvald sett hvort það slekkur ljósin á áðurnefndum tíma eður ei. Það skal líka tekið fram að þessi myrkvun hefur engin áhrif á öryggiskerfi og öll umferðarljós í borginni eru virk.

Nánari upplýsingar á:
Vetrarhatid.is