Styrkur brennisteinsvetnis yfir mörkum í Reykjavík

Heilbrigðiseftirlit Umhverfi

""

Í dag, 1. mars, fór styrkur brennisteinsvetnis yfir sólarhringsheilsuverndarmörkin sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Mengunin er að berast frá jarðhitavirkjununum á Hellisheiði og Nesjavöllum. Líklegt er að vegna veðuraðstæðna verði styrkur áfram hár í dag og næstu daga og því full ástæða til að fylgjast með loftgæðum.

Brennisteinsvetni, ásamt öðrum loftmengunarþáttum, getur haft áhrif á öndunarfæri þeirra sem viðkvæmastir eru og getur hár styrkur ert augu, nef og háls, valdið hósta, öndunarsjúkdómum og óþægindum í brjósti. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með loftgæðum á vef borgarinnar.

Í dag er hæg austanátt, frost og litlar líkur á úrkomu.  Heilbrigðiseftirlitið bendir einnig á að styrkur niturdíoxíðs hefur verið hár undanfarna daga.  Sú mengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest.  Klukkan 11:30 var hálftímagildi brennisteinsvetnis við mælistöðina á Grensásvegi 67, 45 míkrógrömm á rúmmetra en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að þessu sinni staðsettar annars vegar við Rofabæ og hins vegar á lóð leikskólans Grænuborgar við Eiríksgötu.