Styrkir á vegum Hverfisráðs Vesturbæjar
Hverfisráð Vesturbæjar auglýsir hér eftir áhugasömum einstaklingum, stofnunum og félagasamtökum til að sækja um í sjóð ráðsins, en Hverfisráðið mun úthluta að hámarki 200.000 kr. þann 1. nóvember 2015.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. okt. nk. í rafrænu formi til Harðar sem er verkefnastjóri í Vesturgarði í gegnum netfangið hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
Einnig er hægt að hafa samband við Hörð í síma 411 1700 ef það eru einhverjar spurningar.
Sjá nánar um þetta í meðfylgjandi skjali neðst á síðunni hægra megin.