Stjörnuver byggt við Perluna

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Stjörnuver sem tengist náttúrusýningu í Perlunni verður byggt í Öskjuhlíð. Breytt deiliskipulag heimilar einnig byggingu á nýjum hitaveitutanki norðaustan við Perluna.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær breytt deiliskipulag Öskjuhlíðar, innan lóðar Perlunnar. Breytingin felur í sér að ný bygging mun rísa norðan við Perluna og hýsa stjörnuver eða planetarium. Húsið verður rúmir 850 fermetrar að stærð.

Frumkostnaðaráætlun við viðbygginguna er upp á 350 milljónir króna en húsið verður hannað af Ingimundi Sveinssyni arkitekti sem teiknaði Perluna. Leigutaki Perlunnar, Perla Norðursins, kostar allan búnað og innréttingar í stjörnuverinu. Leigutekjur munu greiða upp útlagðan kostnað borgarinnar við fjárfestinguna á innan við 15 árum, segir í greinargerð frá skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar borgarinnar.

Samkvæmt breyttu deiliskipulagi verður Veitum einnig heimilað að byggja nýjan hitaveitutank í Öskjuhlíð, norðaustan við Perluna, en í framtíðinni gætu tankarnir orðið tveir, hvor um sig með rými fyrir 7.800 rúmmetra af vatni fyrir hitaveitu í vesturhluta borgarinnar. 

Í greinargerð Landmótunar með tillögu að breyttu deiliskipulagi segir að reynt verði að fella nýja tanka eins vel inn í landslag í Öskjuhlíð og kostur er.

Mögulega verður hægt að nota hluta af ytra byrði hitaveitutanks sem klifurvegg samkvæmt fyrstu hugmyndum.

Áhrif þessara breytinga eru talin hagkvæm fyrir útivist og ferðaþjónustu þar sem stíganet Öskjuhlíðar verður jafnframt betrumbætt fyrir gesti Perlunnar. Staðsetning á nýjum hitaveitutanki hafa lágmarks áhrif á gróðurlendi Öskjuhlíðar og ekki þarf að fella há tré vegna framkvæmdanna.

Þann 2. júlí í sumar opnaði sýningin Jöklar og íshellir í Perlunni en það er  fyrsti hluti náttúrusýningar sem verður á tveimur hæðum í einum af sex geymum Perlunnar. Á sýningunni birtast jöklarnir, saga þeirra og framtíð birtast og gestir fá tækifæri til að upplifa að ganga í gegnum íshelli.

Á næsta ári mun stjörnuverið opna en það verður hátæknivætt með 360 gráðu umlykjandi upplifun með besta hljóðkerfi og myndgæðum sem völ er á.
Fyrsta sýningin verður sérstaklega samin fyrir stjörnuverið, framleidd af Perlunni og Bowen Productions, þekktu fyrirtæki sem sérhæfir sig í myndum fyrir stjörnuver. Sýningin verður byggð á verkum íslenskra ljósmyndara og kvikmyndatökumanna sem feta nýjar slóðir til að sýna stórkostlega náttúru og lífríki Íslands í þessum spennandi miðli. Hljóðmyndin er úr íslenskri tónlist, sett saman af Ragnhildi Gísladóttur  tónlistarkonu.