Stefán Eiríksson nýr sviðsstjóri velferðarsviðs

Velferð

""

Stefán Eiríksson, nýr sviðsstjóri velferðarsviðs, hóf störf hjá Reykjavíkurborg í dag. Stefán tók fyrsta vinnudaginn í að  heilsa upp á nýja starfsfélaga, stjórnendur borgarinnar og að endingu borgarstjóra, Dag B, Eggertsson.

Stefán leggur áherslu á að byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við samstarfs- og hagsmunaaðila. Stefán hefur skýra framtíðarsýn fyrir velferðarþjónustu í Reykjavík til næstu ára og telur þarfir notenda, gott samstarf, mannauðsstjórnun, opna umræðu og rafræna stjórnsýslu meðal áríðandi verkefna.