Spartunnan áfram vinsæl í Reykjavík

Umhverfi

""
Fyrirspurnir um spartunnur í Reykjavík eru langt umfram væntingar. Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015. 
 
Spartunnan er greinilega ákjósanlegur góður kostur fyrir borgarbúa. „Fyrirspurnir um spartunnur eru langt umfram væntingar, við þurftum að panta fleiri en áætlað var og von er á nýrri sendingu upp úr mánaðamótum,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg.  Spartunnan stendur sérbýlishúsum til boða og er sótt á 14 daga fresti.
 
Reykjavíkurborg hefur farið þá leið að bjóða íbúum að velja það þjónustustig sem hentar þeim og að greiða fyrir þjónustuna í takt við það. Þannig geta íbúar valið hvort þeir vilja nýta sér þjónustu grenndar- eða endurvinnslustöðva eða hvort þeir kjósa að endurvinnanlegur úrgangur sé sóttur frá heimlum þeirra. Á heimilum þar sem lítið fellur til af blönduðum úrgangi geta íbúar í sérbýli óskað eftir spartunnu sem er ódýrari og helmingi minni en gráa tunnan eða 120 lítrar. Íbúar í fjölbýlum geta endurskoðað fjölda grárra tunna og fækkað þeim ef tilefni er til og greitt þannig lægri gjöld. Oft má fækka gráum tunnum í fjölbýlishúsum þar sem tunnur eru samnýttar og getur þá skapast svigrúm til að fá grænar og bláar tunnur undir endurvinnsluefni.
 
Blandaður úrgangur frá heimilum fer í spartunnuna eins og í gráu tunnuna. Hún er minni en sú hefðbundna og tekur 120 lítra í stað 240. Spartunnan var áður sótt á 20 daga fresti. Fyrir hirðubreytinguna voru 3.500 spartunnur sóttar á 20 daga fresti og tóku 240 lítra, það gera 80 lítrar á viku. Spartunnunni var breytt og tekur nú 120 lítra og er sótt á 14 daga fresti en það gera um 60 lítra á viku. 
 
Spartunnan stendur öllum sérbýlum til boða og eru um 31% þeirra að nota hana. Hún er góður kostur fyrir heimili sem flokka og hafa tamið sér vistvæna neysluhætti.

Magn endurvinnsluefna vex

Blandaður úrgangur frá heimilum í Reykjavík stóð nánast í stað á milli áranna 2014 og 2015, fer úr 149 kg á íbúa í 151 kg á íbúa. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015.
 
Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins en í dag eru ríflega 2000 slíkar tunnur við heimili. Plastið fór úr 4,5 tonnum í janúar í 10,5 tonn í mars sem er 57% aukning.
 
 
Heildarmagn af úrgangi frá heimilum í Reykjavík var 233 kg á íbúa árið 2006 en árið 2015 hafði sú tala lækkað um 22% og var 181 kg á íbúa. Þar af voru 29 kg endurvinnsluefni svo magn blandaðs úrgangs hefur dregist saman um 35% á tæpum 10 árum.