Sólarhringsopnun í Laugardalslaug á Jónsmessu

""

Borgarráð hefur samþykkt að Laugardalslaug verði opin allan sólarhringinn þann 24. júní 2014 í tengslum við Miðnæturhlaup 2014 á Jónsmessu sem hefst að kvöldi mánudagsins 23. júní. 

Laugardalslaug var síðast opin næturlangt árið 2010 og heppnaðist það mjög vel. Fjöldi fólks lagði þá leið sína í laugina og var langt fram á nótt. Aðsókn er iðulega mikil í laugina yfir sumarmánuðina og júlí er jafnan vinsælastur.
 
Miðnæturhlaupið 2014 er nú haldið í 22. sinn og hefst og endar í Laugardalnum. Að loknu hlaupi er öllum þátttakendum boðið í Laugardalslaugina. Borgarbúar og aðrir gestir geta einnig notað tækifærið til að synda eða sitja í heitu pottunum á bjartasta tíma ársins. Þetta er frábær leið til að njóta Jónsmessunnar.