Sleitulaust unnið við snjóhreinsun

Umhverfi Framkvæmdir

""

Snjóruðningsbílar voru kallaðir út seinnipartinn í gær og voru þeir að til a.m.k. eitt í nótt.  Allir bílar voru svo kallaðir út aftur klukkan 4.00 þannig að stofnbrautir eru færar nú í morgunsárið.

Þá var sérstakur floti kallaður út til snjóhreinsunar í húsagötum klukkan 4.00 í nótt. 14 vélar fóru þá af stað og er verið að fjölga þeim nú í morgunsárið.  Unnið verður í húsagötum í dag og mjög líklega fram á morgundaginn. Ekki er auðvelt að gefa nákvæmar tímaáætlanir.

Vélar sem hreinsa göngu- og hjólaleiðir voru ræstar út klukkan 4.00 eins og viðbragðsáætlun gerir ráð fyrir.  Hreinsun á öllum megin hjólalaleiðum er lokið, en tæpt er að náist að klára gönguleiðir í fyrsta forgangi fyrir klukkan 8.00 eins og á að vera.

Nánari upplýsingar:

Þjónustusíða snjóhreinsunar og hálkuvarna.

Ábendingavefur  - Fyrir þá sem vilja koma ábendingum vegna snjóhreinsunar til skila.

Borgarvefsjá - Þar undir „lifandi gögn“ má sjá hvar snjóruðningstæki eru og leiðir sem þau hafa farið undanfarna klukkutíma. Ath. ekki eru skráningatæki í öllum bílum og tækjum verktaka.