Skólpi dælt um neyðarlúgu í Faxaskjóli

Heilbrigðiseftirlit

""

Viðgerð fer nú fram á útrásarlögn í hreinsistöðinni í Ánanaustum og því er skólpi nú veitt um neyðarlúgu dælustöðvarinnar í Faxaskjóli.

Í dag hefur farið fram viðgerð á útrásarlögn frá skólphreinsistöðinni í Ánanaustum. Því er óhreinsuðu skólpi nú veitt um neyðarlúguna á dælustöðinni við Faxaskjól til að létta á hreinsistöðinni á meðan á viðgerð stendur. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum er áætlað viðgerð ljúki í kvöld.