Skólaslit í grunnskólum borgarinnar

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Flestum grunnskólum borgarinnar verður slitið miðvikudaginn 7. júní og halda þá hátt í 15.000 skólabörn á vit sumarævintýra. 

Þessa vikuna eru flestir grunnskólar borgarinnar að ljúka vetrarstarfinu með útskriftarathöfnum og skólaslitum. Um 1.400 tíundubekkingar eru að kveðja skólana sína og á leið í framhaldsskóla. 

Börnum og unglingum stendur til boða fjölbreytt frístundastarf í sumar, bæði sumarsmiðjur of fl. á vegum frístundamiðstöðvanna og alls slags námskeið á vegum félagasamtaka.  Nánari upplýsingar og skráning á vefnum www.fristund.is

Skólasetning í grunnskólum á skólaárinu 2017-2018 verður þriðjud. 22. ágúst.