Skóflustunga tekin að 52 íbúðum eldri borgara í Árskógum

Framkvæmdir

""
Það var kátt á hjalla í Árskógum þegar borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður félags eldri borgara tóku fyrstu skóflustunguna að grunni fyrir nýtt fjölbýlishús þar sem verða 52 íbúðir fyrir eldri borgara.
Íbúðirnar í húsinu verða eingöngu seldar félögum  í Félagi eldri borgara og mun félagið hafa eftirlit með endursölu íbúða til að tryggja að allar kvaðir séu virtar. Þá verður þinglýst þeirri kvöð að óheimilt sé að leigja út íbúðir í skammtímaleigu eða til gistiþjónustu.
Íbúðirnar eru hannaðar í samræmi við markmið húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreyttar húsagerðir, blöndun íbúðagerða innan hverfa og aukið framboð smærri íbúað fyrir alla félagshópa – í þessu tilfelli eldri borgara.
 
Fjölbýlishúsið verður 6.650 fermetrar að stærð með 3.850 fermetra kjallara og bílageymslu.
 
Framkvæmdir við jarðvinnu hefjast nú þegar og byggingarframkvæmdir munu að öllum líkindum hefjast í lok nóvember.