Síðasta sýningarhelgi á Ytri höfninni og breyttur opnunartími á uppstigningardag

Skóli og frístund Mannlíf

""
Útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands 2016, Ytri höfnin, lýkur sunnudaginn 8. maí í Hafnarhúsi Listasafni Reykjavíkur og er frítt inn í Hafnarhúsið á meðan á henni stendur.
Útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands 2016, Ytri höfnin, lýkur sunnudaginn 8. maí í Hafnarhúsi Listasafni Reykjavíkur og er frítt inn í Hafnarhúsið á meðan á henni stendur. Á sýningunni eru verk  nemenda á BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild.

Vinsamlegast athugið að fimmtudaginn 5. maí verður Hafnarhúsið opið frá kl. 10–17.