Síðasta sýningarhelgi á gjörningnum Kona í e-moll

Mannlíf Menning og listir

""

Nú fer hver að verða síðastur að sjá gjörninginn Kona í e-moll á sýningunni Guð, hvað mér líður illa eftir Ragnar Kjartansson í Hafnarhúsi. Gjörningurinn er annar í röðinni af þremur gjörningum sýningarinnar. Honum lýkur sunnudaginn 3. september.

Í miðjum hring úr gylltum strimlum stendur kona í pallíettukjól eins og lifandi stytta á snúningspalli. Hún er með Fender-rafmagnsgítar um öxl tengdan magnara og þegar hún slær á strengina ómar e-moll hljómur um sýningarsalinn. Hljómurinn er er angurvær en um leið ágengur, einkum þar sem hann er endurtekinn í sífellu án tilbrigða.

Gjörningurinn fer fram á opnunartíma safnsins, frá morgni til kvölds alla daga. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.