Sérstakir hjólastígar merktir í Heiðmörk

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Skógræktarfélag Reykjavíkur er nú í vikunni að merkja sérstaka hjólastíga í Heiðmörk. Samhliða er 5 kílómetra leið, af um 50 kílómetra stígum í Heiðmörkinni sérmerkt göngufólki.

Aukin reiðhjólaumferð

Heiðmörk nýtur sívaxandi vinsælda vinsælda hjólreiðafólks en fyrir er þetta stóra vatnsverndar-, skógræktar- og útivistarsvæði fjölsótt af gangandi fólki og hestamönnum auk bílvega sem enn liggja í gegnum það. Til að bregðast við þessu mun Skógræktarfélag Reykjavíkur, sem hefur umsjá með útivistarsvæðinu, sérmerkja tæplega 8 km langan hjólastíg um miðbik Heiðmerkur. Samhliða hefur verið sérmerkt leið fyrir umferð gangandi fólks þar sem umferð þess er einna mest. Um er að ræða 5 km stíg er liggur meðfram Heiðmerkurvegi. Helsta ástæða þessara merkinga er að auka öryggi gesta Heiðmerkur með því að skilja á milli umferðar hraðskreiðra hjólreiðamanna og gangandi fólks. 

Hjólreiðafólk velkomið

Skógræktarfélagið fagnar aukinni notkun svæðisins af hálfu hjólreiðafólks og fullur skilningur er innan félagsins á mikilvægi Heiðmerkur fyrir þennan hóp. Í takti við vaxandi fjölda hjólreiðafólks og auknar vinsældir íþróttarinnar hyggst Skógræktarfélag Reykjavíkur vinna að fjölgun reiðhjólastíga í Heiðmörk á næstu misserum. 

Samningur um bætta útivist og varðveislu vatnsbóla

Skilgreining og merkingar stíganna eru hluti af samningi sem Skógræktarfélag Reykjavíkur gerði við Orkuveitu Reykjavíkur fyrr í sumar. Í honum er m.a. fjallað um varðveislu vatnsbóla og vatnsverndarsvæða í Heiðmörk sem og bætta útivist og betri skilgreiningar á stígum og slóðum fyrir umferð um svæðið.

Heiðmörk á sér langa sögu sem útivistarsvæði en bæjarstjórn Reykjavíkur stofnaði formlega til hennar 1950 sem friðland og skemmtigarð fyrir Reykvíkinga. Samtímis fól borgin Skógræktarfélagi Reykjavíkur umsjón svæðisins og var þá þegar hafist handa við ræktun skóga til uppgræðslu og yndis fyrir bæjarbúa.

Á hverju ári kemur um hálf milljón gesta í Heiðmörk til að njóta náttúrunnar, hvort sem er á reiðhjóli, hestbaki eða gangandi.