Seinkun þjónustu vegna færðar á vegum

Velferð

""

Vegna þess hve þung færðin er í borginni getur orðið seinkun á sumri  þjónustu Reykjavíkurborgar. Á þetta sérstaklega við um í efri- byggðum og íbúðagötum þar sem ekki er búið að ryðja.

Heimahjúkrun, heimaþjónusta og heimsendur matur geta verið seinna á ferðinni en venjulega sér í lagi þar sem er þungfært. Vonandi verður fólk ekki fyrir teljandi óþægindum vegna þessa.