Sauðfé rúið í Húsdýragarðinum

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Sauðfé Fjölskyldu- og húsdýragarðsins verður rúið á sunnudaginn (12.mars) frá kl. 13:00 til 16:00.

 Síðast var sauðféð í Húsdýragarðinum rúið í desember og því er reyfið ekki fullvaxið og heitir það þá snoð. Jón bóndi í Mófellsstaðakoti mun rýja og með honum verður föruneyti frá Ullarselinu á Hvanneyri sem mun spinna úr snoðinu jafnóðum og það kemur af fénu.

Við hvetjum áhugasama til að kíkja í garðinn og fylgjast með. Það er opið um helgina frá kl. 10:00 til 17:00 en leiktæki eru enn í sínum vetrardvala.