Salka Valka

Menning og listir

""

Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld, 30. desember, Sölku Völku eftir Halldór Laxness á Stóra sviðinu.  Leikstjóri er Yana Ross en hún gerir einnig leikgerð ásamt Sölku Guðmundsdóttir.

Salka Valka er ein þekktasta saga Halldórs Laxness og sú sem ruddi braut hans til alþjóðlegra vinsælda. Hún er hetjusaga ungrar stúlku sem brýst úr fátækt og fáfræði og nær að verða mikils metinn þjóðfélagsþegn af eigin rammleik með seiglu og einbeittum vilja.

Sagan gerist á Óseyri við Axlarfjörð en þangað flytja mæðgurnar Sigurlína og Salka. Salka litla er stolt og sterk en Sigurlína móðir hennar treystir alfarið á himnaföðurinn og Hjálpræðisherinn. Örlög fólksins á Óseyri eru að mestu á valdi kaupmannsins Jóhanns Bogesen en átakatímar fara í hönd og nýir vindar blása um þjóðfélagið. Áhrifavaldar í lífi mæðgnanna eru aðallega hinn ungi og mælski Arnaldur ásamt Steinþóri sem er alger andstæða hans; uppfullur af frumkrafti sem bæði skelfir og heillar. 

Aðstandendur Höfundur: Halldór Laxness | leikgerð: Yana Ross & Salka Guðmundsdóttir | leikstjóri: Yana Ross | leikmynd: Michal Korchowiec | Búningar: Filippía Elísdóttir | Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson |Tónlist & hljóð: Baldvin Þór Magnússon | Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir | Myndband: Algirdas Gradauskas |  leikarar: Björn Stefánsson, Guðni Kolbeinsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Sigrún Edda Björnsdóttir,  Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir