Reynt við heimsmet í taubleyjuskiptum í Tjarnarsal Ráðhússins

Mannlíf

""

Í ár tekur Ísland, í þriðja skipti, þátt í heimsmeti Guinness í bleyjuskiptum. Metið gengur undir nafninu Taubleyjuskiptin miklu eða The Great Cloth Diaper Change á ensku. Viðburðurinn fer fram í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrramálið 18. apríl klukkan 11. Allir eru velkomnir.

Taubleyjuskiptin miklu eða The Great Cloth Diaper Change á ensku hófst árið 2011 þegar Judy Aagard, eigandi taubleyju þvottaþjónustu í Bandaríkjunum, langaði að fagna og efla notkun endurnotanlegra bleyja.

Metið sem náðist árið 2014 var að skipt var um 8.459 taubleyjur á sama tíma í 18 mismunandi löndum í 6 heimsálfum. Þar af var skipt um 49 bleyjur á Íslandi en þetta árið er gert ráð fyrir að tvöfalda árangurinn.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta fylgst með á Facebook síðu viðburðarins: GCDCiceland. Þátttakendur fá gefins sýnishorn og glaðninga. Það er óþarfi að vera fær í að skipta um bleyjur eða vera sérstakur áhugamaður um bleyjur. Allir geta tekið þátt jafnvel þó svo þeir noti venjulega einnota bleyjur fyrir barnið sitt. Aðal markmið Taubleyjuskiptanna miklu er að vekja athygli í samfélaginu á taubleyjum, að styðja innlenda framleiðslu og minnka sorp.

Viðburðurinn verður haldinn í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, laugardaginn 18. apríl klukkan ellefu. Allir eru velkomnir að koma og fylgjast með því hvernig Guinness heimsmet er haldið.