Reykvískir Ólympíufarar fá viðurkenningu

Íþróttir og útivist

""
Ellefu reykvískir Ólympíufarar fengu viðurkenningu í vikunni sem leið. Reykjavíkurborg og Íþróttabandalag Reykjavíkur afhentu 19. júlí sl. reykvískum íþróttamönnum sem tryggt hafa sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum og Ólympíumótinu í Ríó í sumar styrk.
Ólympíufarar úr reykvískum íþróttafélögum:
Aníta Hinriksdóttir – frjálsar – ÍR
Anton Sveinn McKee – sund – Ægir
Ásdís Hjálmsdóttir – frjálsar – Ármann
Eygló Ósk Gústafsdóttir – sund – Ægir
Guðni Valur Guðnason – frjálsar – ÍR
Helgi Sveinsson – frjálsar – Ármann
Irina Sazonova – fimleikar - Ármann
Jón Margeir Sverrisson – sund - Fjölnir
Sonja Sigurðardóttir – sund – ÍFR
Thelma Björg Björnsdóttir – sund – ÍFR
Þormóður Jónsson – júdó – Júdófélag Reykjavíkur
 
Hver íþróttamaður fékk 500.000 krónur í styrk og var hann afhentur á Kjarvalsstöðum. Það voru Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR, og Ingvar Sverrisson formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur sem afhentu íþróttafólkinu styrkina.